The Interview verður sýnd, fagnað eins og frelsisbaráttusigri

Sony Pictures kvikmynda­fram­leiðandinn hefur ákveðið að sýna kvik­myndina umdeilu The Interview í völdum kvikmynda­húsum á jóladag. Sony hafði áður tilkynnt að myndin yrði ekki sýnd vegna hótanna, sem taldar eru runnar undan rifjum stjórn­valda í Norður Kóreu, um að hryðju­verk yrðu framin ef myndin yrði sýnd. Ástæðan er sú að sögu­þráður The Interview snýst um áætlun tveggja bandarískra blaða­manna að drepa leiðtoga asíska einræðis­ríkisins, Kim Jong Un. Auk þess er leið­toginn sýndur sem hinn mesti fáráður.

Nú hefur verið ákveðið að myndin verði tekin til sýninga og því hefur verið fagnað Í Banda­ríkjunum sem miklum sigri fyrir frelsið. Barack Obama, forseti landsins, hafði gagnrýnt ákvörðun Sony um að láta undan kröfum Norður Kóreu-manna, lýsti yfir mikilli ánægju með það að myndin yrði sýnd. Talsmaður hans sagði við við frétta­menn í gær að Banda­ríkin væru land sem tryði á málfrelsi og rétt lista­manna til að tjá sig. Því væri viðsnúningur Sony og þeirra kvikmynda­húsa sem ætla að taka myndina til sýninga mjög ánægju­legur.

Seth Rogen, annar aðal­leikari myndarinnar, var líka ánægður. Hann setti eftir­farandi skilaboð á Twitter í gær:

The people have spoken! Freedom has prevailed! Sony didn't give up! The Interview will be shown at theaters willing to play it on Xmas day!

— Seth Rogen (@Sethrogen) December 23, 2014

Besta kvikmynd sögunnar...samkvæmt IMDB

Ljóst er að The Interview hefði aldrei fengið jafn mikla athygli og raun ber vitni ef kvikmynda­fram­leiðandinn Sony Pictures hefði ekki orðið fyrir stór­felldri tölvuárás í nóvember. Þar var trúnaðar­gögnum og eintökum af óútgefnum kvik­myndum stolið. Hluti þessarra gagna var síðan lekið út og ollu miklu fjaðra­foki.

https://www.youtube.com/watch?v=DkJA1rb8Nxo

Bandaríska alríkis­lögreglan FBI segist hafa fengið það staðfest að Norður Kórea standi að baki tölvu­árásinni og að ástæðan sé umrædd kvikmynd, The Interview. Stjórn­völd í Norður Kóreu hafa reyndar neitað þessu stað­fastlega en Bandaríkja­menn virðast vissir í sinni sök. Ákvörðun Sony Pictures um að fresta sýningu myndarinnar vegna hótanna um hryðju­verk hefur verið harðlega gagnrýnd.

Þessi gagnrýni hefur verið sett fram með ýmsum hætti. Til að mynda hafa rúmlega 40 þúsund manns gefið myndinni 10 í einkunn á vefnum Internet Movie Data Base, eða IMDB. Þar er meðal­einkunn hennar 9,9 og samkvæmt því er hún besta kvikmynd sögunnar. Sem hefur vakið athygli því að hún hefur ekki, líkt og áður sagði, verið sýnd almenningi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár