Þeir fáu sem græða í faraldrinum

Covid-19 faraldurinn hefur lamað efnahagslíf um allan heim og útlit er fyrir verri kreppu en elstu menn muna. Á sama tíma eru vonar­glætur inni á milli og einstaka fyrirtæki mala gull vegna skyndilegrar eftir­spurnar sem engan óraði fyrir. Í sumum tilvikum gæti það þó verið skamm­góður vermir, líkt og í skemmtana­iðnaðinum þar sem gamalt efni er hamstrað en ekkert nýtt er í fram­leiðslu.

Jeff Bezos
Jeff Bezos Stofn­andi Amazon hefur aldrei verið rík­ari en eftir far­ald­ur­inn. Mynd: AFP

Í fyrsta lagi gefur það augaleið að fyrirtæki sem framleiða andlits­grímur, öndunar­vélar og annan nauðsyn­legan búnað hafa þurft að reyna að auka fram­leiðslu sína með litlum fyrirvara og um leið hefur skorturinn hækkað verð til muna. Yfirvöld um allan heim eru í samkeppni um að kaupa upp þessar vörur sem þýðir að fátækari ríki eiga lítinn sem engan möguleika á að gera samkeppnishæf tilboð. Braskarar hafa sömuleiðis hækkað verð með því að reyna að kaupa upp lager og endur­selja á uppsprengdu verði en víðast hvar á Vestur­löndum er slíkt bannað með lögum. 

Þeir sem selja sápu, spritt, blaut­þurrkur og allt sem tengist hreinlæti hafa líka nóg að gera. Bloomberg-frétta­veitan greindi frá því strax í febrúar að hlutabréf í fyrir­tækinu Clorox væru að hækka á meðan flest önnur voru í frjálsu falli. Það fram­leiðir ýmsar hreinlætis­vörur og hefur stóra markaðs­hlutdeild í Banda­ríkjunum. Auk þess hækkaði strax verð hluta­bréfa í Regeneron …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár