Repúblikanar vilja stöðva komu flóttamanna til Bandaríkjanna

Repúblikanar vilja stöðva komu flótta­manna til Banda­ríkjanna frá Sýrlandi, vegna árásanna í París. Ekkert hefur þó komið fram um að samhengi sé á milli komu flótta­manna frá Sýrlandi til Parísar og árásanna.

Paul Ryan, forseti fulltrúa­deildar Bandaríska þingsins, kom þessum sjónar­miðum á framfæri á blaðamanna­fundi í dag og sagði flokks­menn Repúblikana vera að vinna að frumvarpi um þetta mál sem yrði kosið um í næstu viku. 

Banda­ríkin hafa þegar tekið á móti um 2.200 flótta­mönnum frá Sýrlandi frá 2011, en Barack Obama, forseti, vill taka á móti tíu þúsund til viðbótar, hið minnsta. Hann hefur ekkert gefið út um það hvort ársirnar í París séu tilefni til þess að endur­skoða þau áform.

Ryan sagði að Banda­ríkin hefði ávallt tekið fólki „opnum örmum“ en ekki væri hægt að leyfa hryðju­verkamönnum að „nýta sér það“.

Fram hefur komið hjá frönskum stjórn­völdum að fimm af þeim átta sem stóðu að hryðjuverka­árásunum í París hafi verið franskir ríkis­borgarar, en rannsókn á atburðunum er enn í fullum gangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár