Kaupmáttur heimila landsins dróst saman á öðrum ársfjórðungi

Íslensk heimili fengu minna fyrir krónurnar sínar á öðrum ársfjórðungi 2022 en á sama tímabili ári áður. Eftir mikla heildar kaupmáttar­aukningu í fyrra, að stóru leyti vegna aukinna fjármagns­tekna efsta tekju­hópsins, er verð­bólgan nú að bíta.

Kaup­máttur ráðstöfunar­tekna heimila landsins dróst saman um tæplega 1,5 prósent á öðrum ársfjórðungi ársins 2022, sem hófst í byrjun apríl og lauk í lok júní, þegar hann er borinn saman við sama ársfjórðung í fyrra. Þetta er í fyrsta sinn síðan á fjórða ársfjórðungi 2020 sem kaup­máttur ráðstöfunar­tekna dregst saman.

Ástæða þessa er stóraukin verðbólga, sem nú mælist 9,7 prósent. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun.

Þar kemur fram að ráðstöfunar­tekjur heimila í krónum talið hafi aukist um 9,1 prósent á öðrum ársfjórðungi. Þegar gert er ráð fyrir áhrifum verðbólgu varð niður­staðan hins vegar sú að kaup­máttur dróst saman. Fleiri krónur komu í veskið, en minna fékkst fyrir þær en áður.

Í tölum Hagstofunnar kemur fram að heildar­gjöld heimila hafi aukist um tæplega tíu prósent á öðrum ársfjórðungi.

Þar kemur einnig fram að á árinu 2021 hafi kaup­máttur ráðstöfunar­tekna heimila aukist um 5,4 prósent saman­borið við árið 2020.

Ráðstöfunartekjur efstu tíundar jukust mest í fyrra

Kaup­máttur ráðstöfunar­tekna jókst heilt yfir umtals­vert á árinu 2021, eða um 5,4 prósent saman­borið við árið 2020. Langmesta aukningin var frá miðju síðasta ári og náði hún vel inn á þetta ár, en 7,2 prósent kaupmáttar­aukning var á fyrsta ársfjórðungi 2022.

Helsta ástæða þess að ráðstöfunar­tekjur jukust svona mikið á þessu tímabili var að fjármagns­tekjur náðu methæðum á síðasta ári. Alls höfðu einstaklingar 181 milljarða króna í slíkar tekjur á árinu 2021, sem var 65 milljörðum krónum meira en allar fjármagns­tekjur einstaklingar voru árið áður. Þær hækkuðu því um 57 prósent milli ára, mest vegna sölu­hagnaðar hluta­bréfa sem var 69,5 milljarðar króna á árinu 2021.

Kjarn­inn greindi frá því í júlí að í grein­ingu á álagn­ingu opin­berra gjalda ein­stak­l­inga eftir tekju­­­tí­undum sem Bjarni Bene­dikts­­­son, fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, kynnti á rík­­­is­­­stjórn­­­­­ar­fundi 22. júní síð­­­ast­lið­inn, hafi komið fram að þau tíu pró­­­sent lands­­­manna sem höfðu mestar fjár­­­­­magns­tekjur á síð­­­asta ári hafi tekið til sín 81 pró­­­sent allra fjár­­­­­magns­tekna ein­stak­l­inga á árinu 2021.

Hjá þeim tíu prósent heim­ila í land­inu sem höfðu hæstar tekjur hækk­uðu ráð­stöf­un­ar­tekjur að með­al­tali um ríf­lega tíu pró­sent í fyrra, að lang­mestu leyti vegna auk­inna fjár­magns­tekja. Tekju­hækkun hjá öðrum hópum sam­fé­lags­ins var mun minni, en kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna ein­stak­linga hækk­aði að með­al­tali um 5,1 pró­sent í fyrra.

Því er ljóst að stærstur hluti þeirra kaupmáttar­aukningar sem varð í fyrra lenti hjá tekju­hæstu tíu prósentum lands­manna.

Greiðslubyrði lána hækkað skarpt

Frá því að hin skarpa kaupmáttar­aukning hófst um mitt ár í fyrra hefur margt breyst. Þar ber helst að nefna að verðbólga hefur stóraukist, með tilheyrandi verð­hækkunum.

Til að takast á við hana hefur Seðla­banki Íslands hækkað stýri­vexti úr 0,75 prósent í maí í fyrra í 5,5 prósent nú. Það hefur gert það að verkum að greiðslu­byrði íbúðalána fjölmargra hefur stökkbreyst.

Á heimasíðu Alþýðu­sambands Íslands (ASÍ) var nýverið tekið dæmi af breyti­legu óverðtryggðu láni upp á 43,2 milljónir króna sem tekið var í fyrravor til að kaupa 90 fermetra íbúð í Kópavogi.

Greiðslu­byrði þess láns hefur hækkað um 102 þúsund krónur á mánuði og er nú 266 þúsund krónur. Á ársgrundvelli nemur aukin greiðslu­byrði lánsins rúmlega 1,2 milljónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár