Unnið undir miklu álagi og í „hálfgerðri spennitreyju“

Það er hlut­verk Veð­ur­stof­unnar að meta „stóru mynd­ina“ en ekki hætt­una á ein­staka sprungum. „Það er ann­arra,“ segir Kristín Jóns­dóttir, fag­stjóri hjá Veð­ur­stof­unni.

Kristín Jónsdóttir er fagstjóri náttúruvöktunar hjá Veðurstofu Íslands.
Kristín Jóns­dóttir er fag­stjóri nátt­úru­vökt­unar hjá Veð­ur­stofu Íslands.

„Þetta með að fylla í sprungur er svo sem ekk­ert nýtt enda hefur það verið gert til dæmis reglu­lega í Almanna­gjá,“ segir Kristín Jóns­dóttir, fag­stjóri nátt­úru­vökt­unar hjá Veð­ur­stofu Íslands. „Hættan þarna eru hins vegar þessar sprungu­hreyf­ingar, bæði þessir skjálftar og svo þessi gliðnun. Þessi kviku­gangur sem er þarna undir.“

Er jörðin gaf sig undan Lúðvíki Pét­urs­syni og hann hvarf ofan í sprungu var í gildi hættu­mat­skort Veð­ur­stof­unnar þar sem m.a. var varað við sprungu­hreyf­ingum í Grinda­vík. „Kortið sýnir mat á hættum sem eru til staðar og nýjum hættum sem gætu skap­ast með litlum fyr­ir­vara,“ sagði m.a. í texta sem fylgdi kort­inu. App­el­sínu­gulur litur var yfir Grinda­vík sem þýðir að tölu­verð hætta sé á svæð­inu. „Og lit­irnir sem eru á þessu hættu­mat­skorti eru ekki dregnir upp úr hatti heldur eru þeir mið­aðir við til­tekin atriði og sam­an­lagða hættu á hverju svæði.“

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár