Atburðir næturinnar í París: Meintur höfuðpaur í haldi lögreglu

Franska lögreglan gerði áhlaup á byggingu í úthverfi Parísar í nótt. Lögregla og grunaðir hryðju­verkamenn skiptust á skotum í um þrjá tíma. Tveir eru látnir.

Þungvopnuð sérsveit frönsku lögreglunnar gerði áhlaup á dvalarstað grunaðra hryðjuverkamanna í morgun.
Þung­vopnuð sér­sveit frönsku lög­regl­unnar gerði áhlaup á dval­ar­stað grun­aðra hryðju­verka­manna í morgun. Mynd: EPA

Kúlnahríð og sprengingar gerðu íbúum í úthverfi nyrst í París bylt við í morgun. Lögregan gerði áhlaup á byggingu þar sem talið var að belgíski hryðju­verka­maðurinn sem talinn er hafa skipulagt árásirnar á föstu­daginn héldi sig.

Tveir árásar­menn létust í áhlaupi lögreglunnar. Einn þeirra var kona sem sprengdi sprengju sem hún bar. Hinn var skotinn til bana af leyni­skyttu. Að minnsta kosti sjö manns voru teknir fastir af lögreglu. Markmiðið var að ná Abdel-Hamid Abu Oud, þeim sem talið er að hafi skipulagt árásirnar í París fyrir helgi. Upphaf­lega var talið að hann hefði skipulagt árásirnar frá Sýrlandi en Abu Oud er einn þeirra sem er í haldi eftir áhlaupið. Fréttir eru enn að berast af því hvernig aðgerðin tókst til.

Vitni segja að skot­hvellirnir hafi fyrst heyrst um klukkan 4:20 að staðar­tíma. „Börnin mín grétu. Skot­hríðin stóð yfir í 20 til 25 mínútur, svo hljótt. Svo hófst hún aftur og stóð í mjög langan tíma,“ er haft eftir Nabil Guerram sem býr í Saint-Denis-hverfinu þar sem áhlaupið var gert.

Lögreglan er nú að rýma bygginguna og nágreni hennar. Sjúkra­liðar bíða fyrir utan eftir fólki sem þarf aðhlynningu. Á meðal þeirra sem koma út úr byggingunni eru börn.

Að minnsta kosti sjö sprengingar heyrðust á meðan áhlaupi lögreglu stóð. Aðgerðirnar stóðu fram til klukkan 7:30 en mikið lögreglulið er enn á staðnum. Vegum og götum hefur verði lokað í nágreninu. Öllum almennings­samgöngum í Saint-Denis hefur verið frestað og skólahald verður ekki í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár