Hagvöxtur í stærsta hagkerfi heimsins mun meiri en spár sögðu til

Hagvöxtur í Banda­ríkjunum mældist 2,9 prósent á þriðja ársfjórðungi, en flestar spár voru í kringum 2 til 2,5 prósent. Þetta vinnur frekar með Hillary Clinton end Donald Trump á síðustu metrunum.

Hagvöxtur í Banda­ríkjunum, stærsta þjóðar­hagkerfi heimsins, var 2,9 prósent á þriðja ársfjórðungi þessa árs, og töluvert fyrir ofan flestar spár, sem höfðu gert ráð fyrir 2 til 2,5 prósent hagvexti. Þetta er mesti hagvöxtur sem mælst hefur í Banda­ríkjunum í tvö ár.

Beðið var eftir þessum tölum með nokkurri eftir­væntingu enda er þetta síðasta uppfærða mælingin á hagvexti sem birtist fyrir forseta­kosningarnar 8. nóvember. Búist er við því að Demó­kratar muni nýta sér þessar tölur til að koma þeim upplýsingum á framfæri við kjósendur, að Demó­krötum sé best treystandi fyrir stjórnun efnahags­mála, og þar með eigi að kjósa Hillary Clinton sem næsta forseta.

Eins og mál standa nú, þegar 10 dagar eru til kosninga, þá hefur Hillary forystuna í flestum könnunum. Vefurinn FiveThirtyEight telur 81,6 prósent líkur á að Hillary vinni, en 18,4 prósent að Trump hafi sigur. Líkurnar voru meira Hillary í hag, fyrir nokkrum vikum, en ennþá eru þær þó afgerandi Hillary í hag.

Á öðrum ársfjórðungi var hagvöxturinn töluvert minni, eða 1,4 prósent. Um þessar mundir mælist atvinnu­leysi í Banda­ríkjunum rúmlega 5 prósent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár