„Sjálfselska frekar en ást á Charlie Hebdo?“

Brynjar Níelsson telur ekki fara saman að gagnrýna skopmynd Morgun­blaðsins og lýsa yfir ást á tjáningar­frelsinu

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, furðast að fólk sem lýsti yfir stuðningi við Charlie Hebdo sé reitt veitt vegna skop­myndar sem birtist í Morgun­blaðinu í gær. Þetta kemur fram í pistli sem hann birti á Pressunni í morgun.

„Fólkið sem hafði mikla þörf á að tjá ást sína á Charlie Hebdo er froðu­fellandi af reiði vegna skop­myndar í Mogganum í gær. Þetta er mikið til sama fólkið og er upptekið af friðhelgi einka­lífsins og persónu­vernd nema þegar kemur að fjármálum og tekjum annarra. Telur sig jafnvel styðja frelsi í atvinnu og viðskiptum ef undan­skilið er áfengi og allt kynlífs­tengt,“ skrifar hann og bætir við: „Ég held að þetta fólk hafi litla ást á tjáningar­frelsi og öðrum borgar­legum réttindum nema þegar það hentar þeim sjálfum. Er þetta ekki sjálfs­elska frekar en ást á Charlie Hebdo?“

Þegar morð voru framin á ritstjórnar­skrifstofu blaðsins Charlie Hebdo fyrr á árinu vaknaði fjörug umræða um tjáningar­frelsið og lýsti fjöldi fólks yfir eindregnum stuðningi við réttinn til tjáningar. Af pistli Brynjars að dæma finnst honum skjóta skökku við að sama fólk nýti tjáningar­frelsi sitt til að gagnrýna skopmynda­teiknara Morgun­blaðsins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár