Meiri fjárfesting en minni útboð hjá hinu opinbera

Heildar­virði fjár­festinga hjá stærstu opinberu aðilunum gæti aukist um 20 milljarða króna í ár, en Reykja­víkurborg boðar umfangsmestu fram­kvæmd­irnar. Á hinn bóginn hefur umfang útboða minnkað á milli ára, sem SI segir vera áhyggju­efni.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Áætlað er að stórir opinberir aðilar fjárfesti fyrir allt að 125 milljarða króna í ár, sem væri 20 milljarða króna aukning frá því í fyrra. Aftur á móti er búist við því að heildar­upphæð í útboðum þeirra á Útboðs­þingi Samtaka iðnaðarins (SI) verði um 15 milljörðum krónum minna en í fyrra. Þetta kemur fram í nýbirtri greiningu frá SI.

Misræmi þar sem útboð frestast

Á Útboðs­þingi samtak­anna, sem hægt er að fylgjast með hér, eru byggingar­verkefni stærstu opinberu stofnana, fyrir­tækja og sveitar­félaga boðin út. Því gefur þingið ágæta mynd af áætluðum fjár­festingum hins opinbera.

SI hefur gefið út greiningu þar sem heildar­upphæð í útboðum þeirra sem koma fram á þinginu er áætluð, en samkvæmt henni mun upphæðin dragast saman um 15 milljarða króna á milli ára og nema 109 milljörðum króna í ár. Samtökin segja þennan samdrátt vera áhyggju­efni, þar sem mikilvægt sé að fjár­festing í innviða­uppbyggingu sé næg og viðhaldi innviða sinnt og sé því ástæða til að auka útboð í þess háttar fjár­festingum.

Aftur á móti búast samtökin við að áætluð fjár­festing verði 20 milljörðum krónum meiri í ár heldur en í fyrra og muni nema 125 milljörðum króna. Samtökin segja að misræmi sé á milli útboða og áætlaðra fjár­festingar­verkefna þar sem stundum verði ekki af útboðum eða þau frestast. Því má ætla að aukninguna í fjár­festingu í ár megi skýra með því að töluvert af fyrir­huguðum útboðum í fyrra hafi verið slegið á frest.

Reykjavíkurborg leiðir í fjárfestingum

Vega­gerðin, Reykja­víkurborg og Framkvæmda­sýslan-Ríkis­eignir (FSRE) boða umfangsmestu útboðin í ár. Á meðal verkefna sem boðið verður út hjá Vega­gerðinni er Sæbraut og Miklabraut í stokk og gatnamót við Bústaðaveg. FSRE býður hins vegar út ýmis verkefni víða um land sem tengjast meðal annars hjúkrunar­heimilum og heilsu­gæslum.

Umfangsmestu framkvæmdirnar hjá hinu opinbera á þessu ári verða hins vegar hjá Reykja­víkurborg. Borgin áætlar að fjárfesta fyrir rúmlega 32 milljarða króna í ár, og verður það umtals­verð aukning frá því í fyrra ef áætlanir ná fram að ganga. Samkvæmt greiningu SI fer stór hluti þessara verkefna í uppbyggingu grænna íbúða­hverfa og athafna­svæða víða um borgina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár