Kafbátabíllinn úr Bond til sölu á Ebay

Kafbáta­bíllinn sem James Bond keyrði í kvik­myndinni The Spy who Loved Me frá 1977, Lotus Espirit S1 sportbíll, er til sölu áEbay. Hann kostar sitt, eina milljón Bandaríkja­dala, eða um 120 milljónir króna.

Það eru ákveðnir gallar við bílinn eins og hann er í dag. Það er ekki hægt að keyra hann, og alls ekki sigla honum í vatni, hvorki á yfirborði né undir því. En þetta er merki­legur safn­gripur, segir í frétt The Verge um málið.

Það sem þykir helst merkilegt við þennan bíl er að Elon Musk, stofnandi og stærsti eigandi Tesla Motors, keypti einn svona bíl nýverið og hefur uppi áform um að framleiða bíl sem býr yfir þessum eigin­leikum. Getur bæði keyrt og siglt í kafi. Það verður forvitnilegt að sjá hvort þetta gangi upp hjá Musk. Flest annað virðist gera það.

https://www.youtube.com/watch?v=yeBqf6bYZak

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár