The Economist: Styrking krónunnar áhættuþáttur

Fagtímaritið The Economist telur að þrátt fyrir jákvæðar hagtölur á Íslandi í augna­blikinu, ekki síst vegna vaxandi ferða­þjónustu, þá geti brugðið til beggja vona.

Tímaritið The Economist segir í umfjöllun sinni um stöðu mála á Íslandi að ein helsta áhættan sem íslensku efnahagur standi frammi fyrir þessi misserin sé sú að krónan styrkist of mikið gagnvart helstu viðskipta­myntum, og grafi að lokum undan samkeppnis­hæfni hagkerfisins, einkum útflutningsins.

Krónan hefur styrkst verulega á síðustu tólf mánuðum. Evran kostar nú 123 krónur en kostað 150 krónur um mitt ár í fyrra. Bandaríkja­dalur kostar nú 113 krónur en hann kostaði 136 krónur fyrir ári síðan. Pundið, sem hefur gefið verulega eftir í kjölfar Brexit-kosningarinnar í júní, kostar nú 140 krónur en kostaði 206 krónur fyrir rúmlega ári síðan.

Styrking krónunnar kemur sér illar fyrir útflutnings­fyrirtæki, ekki síst í sjávar­útvegi, og segir í umfjöllun The Economist að þrátt fyrir að ferðþjónusta hafi vaxið hratt, með jákvæðum áhrifum fyrir hagkerfið, þá sé full ástæða til að fylgjast grannt með þessu. Nú sé það ekki fjármála­kerfið sem sé veikast fyrir, líkt og raunin var árið 2008, heldur séu það frum­atvinnu­vegirnir.

Búist er við því að hagvöxtur á þessu ári verði um 5 prósent, sem er mikið í alþjóð­legum saman­burði. Í greininni segir enn fremur að „stærsta áhyggju­efnið“ (biggest worry) sé meðferð á erlendum aflands­krónu­eigendum, í tengslum við afnám hafta.

Eins og kunnugt er hefur birst fordæma­laus herferð, með heilsíðu­auglýsingum í dagblöðum og umfjöllunum á samfélags­miðjum undir merkjum Íslands­vaktarinnar (Iceland Watch), þar sem spjótin hafa beinst að Seðla­banka Íslands og stjórn­völdum. Augljóst virðist, að aflands­krónu­eigendur standi að baki þessari herferð, þó það komi hvergi opinber­lega fram.

Heildar aflands­krónu­eign þeirra nemur um 300 milljörðum, eða sem nemur um 10 prósent af árlegri lands­framleiðslu, segir í greininni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár