Þingmenn Framsóknar vilja að ÁTVR fái heimild til að hafa opið á sunnudögum

Sex þingmenn Framsóknar­flokksins hafa lagt fram frumvarp þess efnis að áfengis­útsölu­stöðum verði heimilt að hafa opið á helgi­dögum þjóð­kirkjunnar. Þau telja það ekki samræmast tíðar­andanum að útsölu­stöðum sé bannað með lögum að hafa opið.

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Hafdís Hrönn Haf­steins­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sex þingmenn Framsóknar­flokksins hafa lagt fram frumvarp til laga um breytingu á áfengis­lögum, þess efnis að ÁTVR fái að hafa opið á sunnu­dögum, sumar­daginn fyrsta, 1. maí, 17. júní og fyrsta mánudaginn í ágúst, sem er frídagur verslunar­manna.

Hafdís Hrönn Hafsteins­dóttir er fyrsti flutnings­maður frum­varpsins, en auk hennar eru þau Ágúst Bjarni Garðarsson, Jóhann Friðrik Friðriksson, Lilja Rannveig Sigur­geirsdóttir, Stefán Vagn Stef­ánsson og Þórarinn Ingi Pétursson á lista yfir flutnings­menn.

Með frum­varpinu yrði felld á brott málsgrein úr 12. grein áfengis­laga, sem í dag kveður á um að áfengis­útsölu­staðir skuli lokaðir á helgi­dögum þjóð­kirkjunnar auk þeirra daga sem áður hafa verið tilgreindir.

Samræmist ekki tíðarandanum

Í greinar­gerð með frum­varpinu segir að bann af þessu tagi við „opnunar­tíma staða sem selja áfengi samræmist ekki tíðaranda samfélagsins“ og að breytingin stuðli að „frelsi til að veita og sækja þjónustu á framan­greindum dögum.“

„Með tilkomu nýrra áfengis­verslana, sérstak­lega netverslana, er talið að veita þurfi áfengis­útsölu­stöðum rýmri heimildir til að bregðast við tilkomu nýrra verslunar­hátta. Frumvarp þetta gerir t.d. Áfengis- og tóbaks­verslun ríkisins auðveldara að opna dyr sínar fyrir neytendum þegar þeim hentar best,“ segir einnig í greinar­gerðinni með frum­varpinu.

Þar segir ennfremur að flutnings­menn telji eðlilegt að áfengis­útsölu­staðir hafi rétt til að ákveða opnunar­tíma án þess að það sé skilyrt í lögum og tekið er fram að hér sér einungis um að ræða heimild, en enga skyldu, til þess að hafa opið. Bent er á að opnunar­tími ríkis­rekinna áfengis­verslana á Norður­löndunum sé almennt ákveðinn með öðrum hætti en laga­setningu og að stjórnir, reglu­gerðir og ákvarðanir ráðuneyta ráði för við slíka ákvarðana­töku.

„Slíkt veitir þeim verslunum rýmra frelsi til að ráða sínum opnunar­tíma og breyta honum ef ástæða er talin vera til þess. Sem dæmi má nefna að í Svíþjóð er opnunar­tími hjá Systembolaget ákveðinn af stjórn félagsins og í Finnlandi er opnunar­tími Alko ákveðinn með reglugerð ráðherra,“ segir í greinar­gerð með frumvarpi þing­mannanna.

Opnunarbönn geti þýtt að fólk sæki í varasamt vín

Þar segir einnig að opnunar­bann á þessum dagsetningum kunni að „leiða til þess að einstaklingar leiti annarra leiða til að nálgast vörurnar á þeim tíma“ og að þær leiðir geti meðal annars vegið „áfengis­kaup af aðilum sem framleiða og selja áfengi án tilskilinna leyfa og í bága við lög og reglur. Því er bætt við að „ákveðin áhætta“ geti falist í vörum sem keyptar eru á þann hátt, þar sem þær séu ekki fram­leiddar í samræmi við reglur og viðurkennda staðla.

„Einnig eru slíkar vörur almennt sterkari, þ.e. innihalda meira magn af vínanda, og geta verið skaðlegar heilsu fólks,“ segir sömuleiðis í greinar­gerðinni.

Flutnings­menn segjast telja frum­varpið „til þess fallið að áfengi verði áfram selt í öruggu umhverfi þar sem eftirlit er með aldurs­takmörkum og stuðlað að forvörnum“ og láta það fylgja að mikilvægt sé að „blása til stór­sóknar í forvörnum meðal annars með því að auka það fjármagn sem eyrna­merkt er forvörnum og setja upp áætlun sem endur­metin verði með reglu­bundnum hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár