Hvetur stjórnvöld til að gagnrýna Bandaríkin

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, vill að stjórn­völd gagn­rýni kyn­þátta­mis­rétti í Banda­ríkj­unum og aðgerðir Donald Trump for­seta. Mótmæli hafa staðið yfir í land­inu und­an­farna daga og hefur lög­reglan beitt mót­mæl­endur ofbeldi.

Logi Einarsson
Logi Ein­ars­son Formaður Sam­fylk­ing­ar­innar kallar eftir því að ráða­menn gagn­rýni fram­göngu yfir­valda í Banda­ríkj­unum. Mynd: Pressphotos

Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, kallar eftir því að íslensk stjórn­völd gagn­rýni Banda­ríkin og Donald Trump for­seta vegna mann­rétt­inda­brota og lög­reglu­of­beldis und­an­farna daga. Einnig þurfi Íslend­ingar að upp­ræta kyn­þátta­for­dóma hér­lendis. Þetta kom fram í máli hans á Alþingi í dag.

Mótmæli hafa staðið yfir í borgum Banda­ríkj­anna und­an­farna daga og hefur lög­reglan beitt mót­mæl­endur táragasi, skotið á fólk með gúmmí­kúlum og keyrt lög­reglu­bíla inn í hópa mót­mæl­enda. Uppþotin hafa átt sér stað í kjöl­far þess að George Floyd, þeldökkur maður, lést eftir hand­töku lög­reglu í Minn­ea­polis­borg, eftir að lög­reglu­maður setti hné sitt og hvíldi þunga sinn á hálsi manns­ins. 

Logi hvaddi sér hljóðs um málið undir liðnum störf þings­ins. Sagði hann þyngra en tárum taki að fylgj­ast með ástand­inu í Banda­ríkj­unum. Þar ríki mikil mis­skipt­ing auðs, auk þess sem heil­brigðiskerið þar­lendis sé ómann­eskju­legt og vel­ferð­ar­kerfið veikt.

„Vissu­lega ein­skorð­ast kyn­þátta­for­dómar ekki við Banda­ríkin, heldur þríf­ast líka hér eins og dæmin sýna“

„Ein birt­ing­ar­mynd þessa mis­réttis er end­ur­tekið lög­reglu­of­beldi,“ sagði hann. „Nú síð­ast morð lög­reglu á George Floyd. Vissu­lega ein­skorð­ast kyn­þátta­for­dómar ekki við Banda­ríkin, heldur þríf­ast líka hér eins og dæmin sýna. Og við þurfum auð­vitað að skera upp herör til þess að eyða þeirri óværu sem ras­ism­inn er úti um allt, líka á Íslandi. En alþjóða­sam­fé­lagið verður líka að þora að láta Banda­ríkja­menn heyra það þegar við á.“

Logi sagði að Ísland hefði rödd sem ætti að nota þegar mikið liggur við. „Nú ríður ein­fald­lega á að við höfum bein í nef­inu til að tala við Banda­ríkja­menn með tveimur hrúts­hornum. Þess vegna hvet ég stjórn­völd til að gagn­rýna þetta rót­gróna mis­rétti sem við­geng­ist hefur í Banda­ríkj­unum í 400 ár og ekki síður gagn­rýna við­brögð núver­andi for­seta sem kyndir undir sundr­ungu og gerir hlut­ina enn verri en ella.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár