Business Insider tekur reglulega saman yfirlit yfir tíu mikilvægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum nákvæmlega núna. Það er ágætt fyrir íslenska fréttaneytendur að taka sér frí frá ummælum Ásmundar Friðrikssonar eða áhyggjum forsætisráðherra af þrengingu umræðunnar.
Tíu mikilvægustu hlutirnir í heiminum í dag eru:
- Útgáfa nýjasta tölublaðs Charlie Hebdo, sem var gefin út í þremur milljónum eintaka og seldist upp í Frakklandi á nokkrum mínútum.
- Leitin að vitorðsmönnum byssumannanna sem frömdu hryðjuverkin í París í síðustu viku.

Frans páfi er í Sri Lanka og búist er við að minnsta kosti milljón manns í messu sem hann mun halda í höfuðborginni Colombo.
Japanir samþykktu í dag stærstu fjárframlög sín til varnarmála í sögunni. Alls munu 41,97 milljarðir dala, um 5.500 milljarðar íslenskra króna, renna til varnarmála á næsta fjárlagaári, sem lýkur í mars 2016.
Rússnesk stjórnvöld vara við því að verðbólga í landinu gæti orðið 17 prósent í mars þar sem rúblan heldur áfram að falla samhliða heimsmarkaðsverði á olíu.
Indónesískir ráðamenn segja að þeir muni geta greint frá mikilvægum upplýsingum úr svörtu kössununum úr AirAsia þotunni sem brotlenti innan viku.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að viðræður milli sambandsins og Bandaríkjanna um víðtækan fríverslunarsamning séu að mæta mikilli efahyggju.
Ný könnun, sem birt var í dag, sýnir að nærri helmingur gyðinga í Bretlandi telja að þeir eigi sér ekki langtímaframtíð í Bretlandi eða í Evrópu yfir höfuð.
Enn eitt skipið, það fjórða, hefur verið fengið til að taka þátt í leitinni að hinni týndu vél Malaysia Airlines, MH370. Skipin fjögur leita á ókönnuðu landsvæði um 1.600 kílómetra vestur af áströlsku borginni Perth.
Etsy markaðstorgið, sem tengir handunnar vörur á netinu, ætlar að skrá sig á markað á þessum ársfjórðungi.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir