Flóttabíllinn fundinn þremur kílómetrum frá skotstaðnum

Flótta­bíllinn sem notaður var eftir skot­árásina í Kaupmanna­höfn er fundinn. Lögreglan í Kaupmanna­höfn hafði lýst eftir bílnum, dökkum VW Polo. Hann fannst við Borgervænget á Austurbrú í Kaupmanna­höfn, um þremur kíló­metrum frá Krudttønden, þar sem skot­árásin átti sér stað.

Hér fannst bíllinn.

85b6a4b4-8e01-4fcc-a80e-6c1274547c60
85b6a4b4-8e01-4fcc-a80e-6c1274547c60

Tveir menn, sem eru taldir hafa framið skot­árásina, ganga enn lausir. Samkvæmt vef Berlinske voru þeir dökk­klæddir og töluðu dönsku. Þeir lögðu á flótta á dökkum VW Polo, en bíllinn er nú fundinn svo talið er líklegt að þeir hafi skipt um bíl.

Gríðar­lega umfangs­mikil leit stendur yfir í Kaupmanna­höfn að mönnunum tveimur. Lögreglan í Kaupmanna­höfn mun halda blaðamanna­fund klukkan 18 að íslenskum tíma.

Hér má fylgjast með beinni útsendingu DR2.

Borgar­stjóri Kaupmanna­hafnar hefur tjáð sig um skot­árásina á Twitter.

Jeg er forfærdet og dybt berørt over skudepisoden ved Krudttønden. Mine tanker er hos de ramte og deres pårørende.

— Frank Jensen (@FrankJensenKBH) February 14, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár