Vill ríkisbankana og Landsvirkjun á hlutabréfamarkað

Forstjóri Kaup­hallarinnar kallar eftir því að Lands­bankinn og Íslands­banki verði skráðir á markað. Við það muni hlutabréfa­markaður ná þeirri stærð sem hann þarf. Hann vill líka að ríkið íhugi leiðir til að skrá Lands­virkjun.

„Nú svo geri ég mér vonir um, og held að það sé gríðar­lega mikilvægt, að bankarnir, sem eru í eigu ríkisins, komi inn á markaðinn. Og ég held að þetta geti hreinlega ráðið úrslitum um það að ná þessu markmiði okkar að koma íslenska markaðinum okkar upp í flokk á meðal þessara bestu markaða í heimi[...]Því í raun og veru það sem fyrst og fremst stendur okkur fyrir þrifum til þess að komast þangað er stærð markaðarins.“

Þetta segir Páll Harðarson, forstjóri Kaup­hallar Íslands, í viðtali við Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Kjarnans, í sjónvarps­þættinum 21 á Hringbraut. Hægt er að sjá stiklu úr þættinum hér að neðan.

Páll segist hafa heimildir fyrir því að ef markaðs­virði félaganna sem skráð eru á íslenskan hlutabréfa­markað yrði tvöfaldað, þannig að það kæmu um þúsund milljarðar í viðbót af markaðs­virði inn á hann, þá væri íslenski markaðurinn kominn nánast alla leið í átt að ofan­greindu markmiði. „Ef við lítum á markaðs­virði bankanna þá gæti skráning þeirra komið okkur vel áleiðis. Svo má náttúru­lega reikna með vexti þeirra fyrir­tækja sem þar fyrir eru. Þannig að við lítum mikið til skráningu Íslands­banka og Lands­bankans. Og teljum að það væri einfald­lega gríðar­lega mikilvægt fyrir þróun þessara innviða,hlutabréfa­markaðar, á næstu árum.“

Hann segist vilja að Kauphöll Íslands endur­spegli betur íslenskt efnahagslíf.„Að stórum hluta vantar sjávar­útveginn þarna inn ennþá. Það vantar orku­fyrirtækin. Og af þó nokkrum hluta ferða­þjónustuna líka.“

Þó segist Páll skilja áhyggjur almennings af því að með skráningu orku­fyrirtækja séu undir auðlindir þjóðar, og því vilji margir fara varlega. „Við höfum hins vegar bent á það að það eru fleiri en ein leið inn á markað.

Ein leið sem hefur verið lítið rædd er að ríkið einfald­lega seldi B-hlutabréf í t.d. Lands­virkjun sem bæru engan atkvæðis­rétt.

Ríkið yrði að nokkru leyti leyst út úr sinni fjárhags­legu áhættu en væru samt sem áður með tögl og haldir í fyrir­tækinu og réðu því alfarið. Ég held að þessi leið væri verð athugunar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár