Sanders safnaði nærri því jafn miklum peningum og Clinton

Á síðustu þremur mánuðum hefur Bernie Sanders, forseta­fram­bjóðandi í Banda­ríkjunum sem sækist eftir útnefningu Demókrata, safnað nærri því jafn háum fjárhæðum í kosninga­sjóð sinn og vinsælasti fram­bjóðandinn, Hillary Clinton, hefur gert. Á tíma­bilinu safnaði Sanders um 26 milljónum dollara, jafnvirði ríflega 3.300 milljónum króna, saman­borið við 28 milljón dollara sem runnu í sjóð Clinton.

Ágætt gengi Sanders í kosninga­baráttunni hefur komið mörgum á óvart. Sanders er á vinstri væng pólitíska litrófsins í Banda­ríkjunum og segist sjálfur vera sósíal­isti. Á kosninga­fundum hefur hann dregið að fjölda fólks. Í umfjöllun Financial Times um málið í dag segir að upphæðirnar sem nú renna í kosninga­sjóði Sanders endur­spegli auknar vinsældir hans. Það megi meðal annars sjá af lýðfræði þeirra sem styrkja framboðin. Mun algengara er að einstaklingar styrki Sanders heldur en fyrirtæki eða sterk­efnaðir sjóðir auðugra fjöl­skyldna. Því er öfugt farið hjá Clinton.


En þrátt fyrir að Sanders njóti vinsælda hjá hópi Demókrata þá benda skoðana­kannanir til að hann ógni ekki framboði Hillary Clinton, að minnsta kosti enn sem komið er. Nýjasta könnunin leiddi í ljós 18 prósentu­stiga forskot Hillary meðal kjósenda Demókrata­flokksins. Um 43 prósent aðspurðra sögðust myndu kjósa Hillary saman­borið við 23 prósent fylgi Sanders. Fylgi vara­forseta Banda­ríkjanna, Joe Biden, mældist tuttugu prósent í könnuninni. Hann hefur ekki tilkynnt um framboð en íhugar nú hvort hann blandi sér í slaginn.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár