Fyrrverandi bæjarstjóri Garðabæjar formaður framkvæmdanefndar um þjóðarhöll

Ný þjóðar­höll í innan­húsíþróttum á að rísa í Laugardal fyrir lok árs 2025. Framkvæmda­nefnd hefur verið skipuð og tók til starfa í dag. Höllin á að stórbæta umgjörð landsliða og tryggja Þrótti og Ármann „fyrsta flokks aðstöðu.“

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, Gunnar Einarsson, formaður framkvæmdanefndarinnar, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, Gunnar Ein­ars­son, for­maður fram­kvæmda­nefnd­ar­innar, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra. Mynd: Stjórnarráðið

Gunnar Einarsson, fyrr­verandi bæjar­stjóri Garða­bæjar, hefur verið skipaður formaður framkvæmda­nefndar um þjóðar­höll í innan­húsíþróttum. Ásamt Gunnari sitja í nefndinni Jón Viðar Guðjónsson og Þórey Edda Elís­dóttir, sem fulltrúar ríkisins, og Ólöf Örvarsdottir og Ómar Einarsson sem fulltrúar Reykja­víkurborgar. Ráðinn verður starfs­maður sem vinnur með framkvæmda­nefndinni.

Framkvæmda­nefndin hóf störf í dag og stefnt er að því að framkvæmdum við þjóðar­höllina verði lokið fyrir árslok 2025. Hlutverk nefndarinnar verður að leiða vinnu vegna hönnunar, útboðs og hvernig staðið verður að fjár­mögnun þjóðar­hallar og undirbúa ákvörðun um útfærslu og rekstrar­form. Þá á hún að útbúa tímasetta framkvæmdar­áætlun um uppbyggingu hennar.

Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu mennta- og barnamála­ráðuneytisins, sem fer með málefni íþrótta í ríkis­stjórninni, og Reykja­víkurborgar sem birt var í dag.

Tekist á í aðdraganda kosninga

Málefni þjóðar­hallar urðu heitt pólitískt álitaefni í aðdrag­anda síðustu sveitar­stjórnar­kosninga. Mikill þrýstingur skapaðist annars vegar frá hópi íbúa í Laugardal þar sem innan­húsaðstaða til íþrótta­iðkunar fyrir hverfis­félögin Þrótt og Ármann hefur verið með öllu ólíðandi áratugum saman, og hins vegar frá handbolta- og körfubolta­hreyfingunni þar sem það stefndi í að íslensku lands­liðin í greininum gætu ekki spilað lands­leiki á heima­velli vegna þess að gamla Laugardalshöllinn uppfyllir ekki nútíma­skilyrði til þess.

Í apríl Gaf Dagur B. Eggertsson borgar­stjóri ríkinu mánaðar­frest til að leggja fram fé í verk­efn­ið. Næð­ist það ekki myndi borgin taka tvo millj­­­arða króna sem hún hefur sett til hliðar fyrir það og nota þá til að byggja nýtt íþrótta­hús fyrir iðk­endur Þróttar og Ármanns í Laug­­­ar­­­dal.

Viljayfirlýsing undirrituð í maí

Þann 6. maí, nokkrum vikum fyrir kosningarnar, undir­rituðu Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Ásmundur Einar Daða­son mennta- og barna­mála­ráð­herra og Dagur vilja­yf­ir­lýs­ingu um bygg­ingu þjóð­ar­hallar í inn­an­húss­í­þrótt­um.

Stefnt yrði að því að fram­kvæmdum ljúki árið 2025 og kostn­að­ar­skipt­ing milli ríkis og borgar átti að taka mið af nýt­ingu mann­virk­is­ins. Það þýðir að ríkið borgar fyrir þann hluta sem snýr að þörfum sér­sam­banda og alþjóð­legra krafna til keppn­is­að­stöðu lands­liða og Reykja­vík­ur­borg þann hluta sem snýr að þörfum Þróttar og Ármann ann­ars vegar og íþrótta­kennslu skóla í Laug­ar­dalnum hins veg­ar.

Til stendur að byggja höll­ina á svæði sem liggur milli Laug­ar­dals­hallar og skrif­stofu­mann­virkja Íþrótta­sam­bands Íslands, og að Suð­ur­lands­braut.

Félögin fá sex velli í stað fjög­urra

Á opnum íbú­a­fundi í Laug­­ar­­nes­­skóla 2. mars síð­ast­lið­inn ræddi Dagur ítar­­lega um aðstöð­u­­mál íþrótta­­fé­lag­anna í hverf­inu. Þar sagði hann: „Ég veit að sumir hafa verið að pirra sig á því að það hafi verið að blanda þjóð­ar­leik­vöngum inn í þetta og ég skil það að vissu leyti. En ég hef haldið því fram, bæði þegar ég ræði við for­ystu Þróttar og Ármann og við ykkur hér að það geta verið ótví­ræð tæki­færi í því ef að ríkið loks­ins skuld­bindur sig á þjóð­ar­leik­vang og gerir það strax.“

Dagur sagði að gamla Laug­ar­dals­höll­in, sem hefur ekki verið ó notkun vegna skemmda í tvö ár, verði til­búin til notk­unar 15. ágúst næst­kom­andi. Kost­ur­inn við þjóð­ar­höll umfram sér­stakt íþrótta­hús fyrir Þrótt og Ármann, sem borgin hafi tekið tvo millj­arða króna frá til að byggj væri sá að gólf­­­flötur í nýrri þjóð­­ar­höll yrði slíkur að hann rúmi fjóra fulla keppn­is­velli í hand­­bolta. Þegar þeim yrði bætt við þá tvo velli sem eru í Laug­­ar­dals­höll gæti þjóð­­ar­hall­­ar­­lausnin skilað iðk­endum í Laug­­ar­­dal alls sex æfinga­­völlum í fullri stærð, sem þyrfti að deila með lands­liðum þegar þannig bæri und­­ir.

Nýtt íþrótta­hús á bíla­­stæð­inu við hlið Þróttaheimilisins myndi skila tveimur nýjum völlum í fullri stærð og því var ávinn­ing­­ur­inn að þjóðarhallarleiðirnir, mjög ein­fald­­lega, fleiri vell­­ir. Meira pláss.

Skref í átt að nýrri þjóðarhöll

Ásmundur Einar Daðason segir í tilkynningunni í dag að með stofnun framkvæmdar­nefndarinnar færist þjóðin skrefi nær því að hefja framkvæmdir á nýrri þjóðar­höll. „Ég tel að við séum með öflugan hóp fagfólks sem eigi eftir að skila góðu verki.“

Haft er eftir Degi á sama stað að það sé mjög mikilvægt að koma undir­búningi þjóðar­hallar af stað. „Henni er ekki bara ætlað að stórbæta umgjörð landsliða og leikja og vera fjölnota hús fyrir þjóðina. Megin­tilgangurinn með aðkomu borgarinnar að verk­efninu er að auka og stórbæta aðstöðu til æfinga og keppni fyrir börn og unglinga í Laugardal. Þróttur og Ármann og skólarnir í hverfinu verða eftir þetta með fyrsta flokks aðstöðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár