Ríkið hefur mánuð til að leggja fram fé í þjóðarhöll, annars byggir borgin íþróttahús á bílastæði

Árum saman hefur aðstöðu­leysi barna og ung­menna sem æfa hjá Þrótti eða Ármann verið tengt við upp­bygg­ingu nýjum þjóð­ar­leik­vöngum fyrir knatt­spyrnu og inni­í­þróttir. Sam­eig­in­legur kostn­aður hefur verið áætl­aður allt að 24 millj­arðar króna.

Laugardalshöllin var vígð í desember1965 og átti upphaflega að duga í 20 ár. Nú eru liðin rúm 66 ár frá vígslu hennar.
Laug­ar­dals­höllin var vígð í des­em­ber1965 og átti upp­haf­lega að duga í 20 ár. Nú eru liðin rúm 66 ár frá vígslu hennar. Mynd: RÚV/Skjáskot

Þjóð­ar­leik­vangar. Heimili lands­liða þar sem þjóð sam­ein­ast um að hvetja áfram hóp­í­þróttalið sem fóðra þjóð­ar­sjálfið á hátt sem erfitt er að útskýra, og enn erf­ið­ara að toppa. Góður árangur knatt­spyrnu-, hand­bolta- og körfu­boltalands­liða Íslands hefur getu til að láta þjóð sem er oft ekki sam­mála um neitt nema að vera ósam­mála um flest leggja niður vopnin, fall­ast í faðma og toga svo að öllu afli í sömu átt.

Í nokkur ár hefur hins vegar blasað við sú staða að þessi heim­ili lands­lið­anna eru úr sér gengin. Þau upp­fylla ekki alþjóð­legar kröfur og eru annað hvort á und­an­þágum eða geta ekki hýst heima­leiki lands­liða. Getur þjóð sem tengir þjóð­ar­sjálfið jafn sterkt við lands­liðin sín spilað heima­leiki sína … að heiman?

Svarið hefur verið nei. Það sé ekki hægt. Ráðast þurfi í upp­bygg­ingu á nýjum þjóð­ar­leik­vangi í knatt­spyrnu og nýrri þjóð­ar­höll fyrir inni­í­þróttir.

Málið hefur hins vegar orðið að póli­tísku bit­beini milli rík­is­ins, sem vill byggja upp nýja leik­vanga í Laug­ar­dalnum þar sem hinir gömlu eru, og Reykja­vík­ur­borgar, sem vill fyrst og síð­ast hafa hags­muni iðk­enda tveggja hverf­is­fé­laga í Laug­ar­dalnum í fyr­ir­rúmi þegar kemur að upp­bygg­ingu mann­virkja þar.

Úr hefur orðið reip­tog sem nú sér mögu­lega fyrir end­ann á. Í vik­unni var spilað út spili sem mun mögu­lega höggva á þennan hnút, en með þeim hætti að mikil óvissa verður um upp­bygg­ingu þjóð­ar­leik­vanga í Laug­ar­dalnum.

Hvort það verði raunin mun ráð­ast innan mán­aðar.

Risastór íþróttafélög án íþróttahúss

Íþrótta­fé­lögin Þróttur og Ármann reka fjöl­mennar íþrótta­deildir, sam­eig­in­lega einar þær fjöl­menn­ustu í Reykja­vík. Íþrótta­grein­arnar sem félögin bjóða upp á skar­ast ekki og því má líta á iðk­enda­hóp þeirra sem eina hverf­is­heild. Þannig rekur Þróttur til dæmis afar öfl­uga knatt­spyrnu­deild en Ármann hefur byggt upp risa­stóra körfuknatt­leiks­deild af mik­illi elju, á skömmum tíma. Félögin tvö þjón­usta þrjú rót­gróin hverfi í Laug­ar­dalnum: Laug­ar­nes-, Lang­holts- og Voga­hverfi. Auk þess var nýverið greint frá því að þau yrðu sam­eig­in­lega hverfa­fé­lög nýrrar Voga­byggðar.

Aðstöðu­mál íþrótta­fé­laga og skóla í Laug­ar­dalnum hafa þó lengi verið í lama­sessi. Eini gervi­gras­völl­ur­inn í hverf­inu er ónýtur vegna ofnotk­unar og eina íþrótta­húsið sem upp­fyllir nútíma­kröfur um æfinga­að­stöðu, Laug­ar­dals­höll­inn, hefur oft verið tekin undir aðra notkun eins og tón­leika­hald og ráð­stefnur. Íþrótta­æf­ingar barna og ung­linga hafa þá verið látnar víkja fyrir öðrum tekju­ber­andi við­burðum. Þess utan hefur Laug­ar­dals­höll­inn ekki verið í notkun í tvö ár vegna leka, og vand­ræða vegna útboðs­mála sem fylgdu við­gerð á henni.

Í þarfa­grein­ingu sem Reykja­vík lét gera á aðstöðu íþrótta­fé­laga innan borg­ar­markanna fyrir nokkru lentu mál Þróttar og Ármanns í tveimur efstu sæt­unum. Úrbætur á þeim voru þær brýn­ustu.

Árum saman hefur verið mik­ill þrýst­ingur frá þeim sem standa að rekstri íþrótta­fé­lag­anna, að uppi­stöðu sjálf­boða­liðum sem gefa tíma sinn til stjórn­ar­setu eða í önnur þörf verk­efni sem þarf að ráð­ast í til að vinna að fram­gangi þeirra, að unnin verði braga­bót á þessu ástandi.

Tími til að „grípa skófluna“

Þessi aðstöðu­mál hafa svo bland­ast saman við boð­aða upp­bygg­ingu á nýjum þjóð­ar­leik­vöngum fyrir knatt­spyrnu og inni­í­þróttir. Núver­andi þjóð­ar­leik­vangar eru enda báðir í Laug­ar­dalnum og upp­fylla, líkt og áður sagði, ekki lengur alþjóð­legar kröfur. Þá þarf að end­ur­nýja ef íslensk lands­lið ætla sér að spila heima­leiki sína á Íslandi í fram­tíð­inni.

Lilja Alfreðsdóttir var ráðherra þjóðarleikvanga á síðasta kjörtímabili.
Lilja Alfreðs­dóttir var ráð­herra þjóð­ar­leik­vanga á síð­asta kjör­tíma­bili.

Vegna þess­arar stöðu hafa átt sér stað við­ræður milli rík­is­ins ann­ars vegar og Reykja­vík­ur­borgar hins vegar um upp­bygg­ingu þjóð­ar­leik­vanga og hvort þeir gætu líka nýst til að besta æfinga­að­stöðu barna og ung­linga í Þrótti og Ármann sam­hliða.

Haustið 2020, ári fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar, skall á með yfir­lýs­ingum um þessi mál. Þann 22. sept­em­ber það ár var birt til­kynn­ing á vef stjórn­ar­ráðs­ins um að starfs­hópur um þjóð­ar­leik­vang fyrir inni­í­þróttir hefði skilað skýrslu um helstu val­kosti er snúa að upp­bygg­ingu slíks íþrótta­mann­virk­is. Lilja Alfreðs­dóttir, þáver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hafði skipað starfs­hóp­inn til þess að afla upp­lýs­inga um kröfur sem gerðar voru til mann­virkja sem hýsa alþjóð­lega leiki og mót auk þess að greina þarfir fyrir slíkt mann­virki hér­lend­is.

Helstu nið­ur­stöður hóps­ins voru þær að engin mann­virki á Íslandi upp­fylltu þær kröfur sem gerðar eru til sér­sam­banda vegna alþjóð­legra keppna eða land­s­leikja í hand­knatt­leik og körfuknatt­leik.

Til að upp­fylla alþjóð­legar kröfur yrði að byggja nýtt mann­virki. Verkís verk­fræði­stofa var fengin til þess að gera kostn­að­ar­mat á bygg­ingu mann­virkis ásamt því að leggja mat á rekstr­ar­kostn­að. Heild­ar­kostn­aður við bygg­ingu þjóð­ar­leik­vangs fyrir inni­í­þróttir var áætl­að­ur á bil­inu 7,9 til 8,7 millj­arðar króna. Mun­ur­inn fólst í því hvort húsið eigi að taka fimm þús­und eða 8.600 áhorf­end­ur.

Laugardalshöllin er rekin á undanþágu þar sem hún uppfyllir ekki alþjóðlega staðla. Hún hefur auk þess ekki verið í notkun í tvö ár vegna leka.
Laug­ar­dals­höllin er rekin á und­an­þágu þar sem hún upp­fyllir ekki alþjóð­lega staðla. Hún hefur auk þess ekki verið í notkun í tvö ár vegna leka.

Í til­kynn­ing­unni var haft eftir mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra að fram undan væri að tryggja fjár­mögnun og sam­vinnu við helstu sam­starfs­að­ila. Síðar þyrfti að „ráð­ast í hönnun og grípa skófl­una og byggja fram­tíð­ar­leik­vanga fyrir lands­lið Íslend­inga, íþróttaunn­endur og iðk­endur á öllum aldri.“

Bókað í þverpólitískri sátt

Í sama mán­uði, sept­em­ber 2020, skil­aði breska ráð­gjafa­fyr­ir­tækið AFL val­kosta­grein­ingu um end­ur­nýjun þjóð­ar­leik­vangs í knatt­spyrnu. Nið­ur­staða hennar var að hag­­kvæm­­asti kost­­ur­inn varð­andi bygg­ingu nýs þjóð­­ar­­leik­vangs í knatt­­spyrnu væri að byggja nýjan fót­­bolta­­völl með sætum fyrir 15 þús­und áhorf­endur og að ekki væri fýsi­­legt til langs tíma að ráð­­ast í end­­ur­bætur á Laug­­ar­dals­velli. Kostn­aður við hann var áætl­aður 10-15 millj­arðar króna.

Þann 10. nóv­em­ber 2020 mark­aði Reykja­vík­ur­borg sér þá stefnu, í tengslum við for­gangsröðun fjárfest­inga í íþróttamálum, að hún væri til­búin til að koma að fjármögnun þjóðar­leik­vanga í knatt­spyrnu og frjálsum íþróttum (síð­ar­nefndi yrði nauð­syn­legur þar sem færa þarf frjáls­í­þrótta­að­stöðu frá Laug­ar­dals­velli til að upp­fylla alþjóða­kröfur) ef aðstaða á þeim myndi nýt­ast börnum og ung­lingum til æfinga og keppni.

Borg­ar­ráð sam­þykkti bókun þess efnis þennan dag sem full­trúar allra flokka sem þar sátu sam­þykktu. Þar stóð meðal ann­ars: „Reykja­vík­ur­borg lýsir sig til­búna til að leggja núver­andi knatt­spyrnu­völl og mann­virki, og núver­andi fram­lög vegna rekstrar vall­ar­ins eða jafn­gildi þeirra inn í verk­efnið. Aðkoma borg­ar­innar að þjóð­ar­leik­vangi í knatt­spyrnu byggir að öðru leyti á þeirri for­sendu að frek­ari fjár­mögnun, fram­kvæmda­á­hætta og rekstr­ar­á­hætta vegna leik­vangs­ins verði ekki á hendi Reykja­vík­ur­borgar heldur ann­arra aðila að verk­efn­inu.“

Þennan sama dag, 10. nóv­em­ber 2020, sendi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið frá sér til­kynn­ingu þar sem greint var frá því að rík­is­stjórnin hefði sam­þykkt á fundi sínum þann dag að hefja við­ræður við Reykja­vík­­­ur­­borg um næstu skref vegna bygg­ingu nýs þjóð­­ar­­leik­vangs, að til­­lögu þáver­andi mennta- og menn­ing­­ar­­mála­ráð­herra og Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Í til­kynn­ing­unni var meðal ann­ars haft eftir Lilju Alfreðs­dótt­ur að það væri löngu tíma­bært að ráð­ast í bygg­ingu nýs þjóð­ar­leik­vangs og að hún væri „von­góð um að hann muni rísa á næstu fimm árum.“

„Ég er er fullur bjart­­sýni um að lend­ing náist í því og að nýr þjóð­­ar­­leik­vangur rísi sem allra fyrst,“ sagði Bjarni Bene­dikts­son á sama stað.

Þolinmæðin á þrotum

Þegar fjár­mála­á­ætlun síð­ustu rík­is­stjórn­ar­ fyrir árin 2022-2026 var birt í mars 2021, rúmum fjórum mán­uðum síð­ar, kom hins vegar í ljós að ekki var gert ráð fyrir því í áformum stjórn­valda að fjár­magni yrði veitt í verk­efnin út árið 2026.

Þol­in­mæði íþrótta­fé­lag­anna í Laug­ar­dal brast end­an­lega og þau settu auk­inn kraft í kröfur sínar um úrbætur.

Þann 24. mars 2021 und­ir­rit­uðu Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, og full­trúar íþrótta­fé­lag­anna í Laug­ar­dal sam­eig­in­lega vilja­yf­ir­lýs­ingu um upp­bygg­ingu íþrótta­mann­virkja fyrir börn og ung­menni í Laug­ar­dal. Þar sagði meðal ann­ars að aðilar væru „sam­mála um að lokið verði við þarfa­grein­ingu vegna nýs íþrótta­húss fyrir félögin og að strax hefj­ist und­ir­bún­ingur við gerð nýs deiliskipu­lags byggt á hug­myndum félag­anna um íþrótta­mann­virki í Laug­ar­dal“.

Sumarið 2021 var sam­þykkt nýtt deiliskipu­lag sem gerði ráð fyrir að tveir nýir gervi­gras­vellir yrðu lagðir á gamla Val­bjarn­ar­vell­ingum í Laug­ar­dal sem myndu þjóna knatt­spyrnu­deild Þróttar. Fram­kvæmdir við lagn­ingu þeirra töfð­ust vegna kæru­mála í tengslum við útboð en hófust lokst í mars og á að ljúka í sumar.

Teikning af því íþróttahúsi sem gæti risið við félagssvæði Þróttar og Ármanns.
Teikning af því íþrótta­húsi sem gæti risið við félags­svæði Þróttar og Ármanns.

Þá stóð eftir inn­an­hús­að­staða íþrótta­fé­lag­anna í Laug­ar­dal. Af hverju var eig­in­lega verið að þvæla þjóð­ar­leik­vöngum saman við aðstöðu fyrir börn og ung­linga í Laug­ar­dal?

Ástæðan er sú að gólf­flötur í nýrri þjóð­ar­höll er slíkur að hann rúmar fjóra fulla keppn­is­velli í hand­bolta. Þegar þeim yrði bætt við þá tvo velli sem eru í Laug­ar­dals­höll gæti þjóð­ar­hall­ar­lausnin skilað iðk­endum í Laug­ar­dal alls sex æfinga­völlum í fullri stærð, sem þyrfti að deila með lands­liðum þegar þannig bæri undir.

Mynd úr glærukynningu borgarstjóra 2. mars 2022.
Mynd úr glæru­kynn­ingu borg­ar­stjóra 2. mars 2022.

Nýtt íþrótta­hús á bíla­stæð­inu við hlið Þrótta­heim­il­is­ins myndi skila tveimur nýjum völlum í fullri stærð og því var ávinn­ing­ur­inn að þjóð­ar­hall­ar­leið­irnir, mjög ein­fald­lega, fleiri vellir. Meira pláss.

„Komið að því að bretta upp ermarnar og klára þetta mál“

Kosið var í sept­em­ber 2021 og flokk­arnir þrír, Vinstri græn, Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur, sem stýrðu land­inu á síð­asta kjör­tíma­bili end­ur­nýj­uðu sam­starf sitt. Sá sem vann mesta kosn­inga­sig­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, gerði þjóð­ar­leik­vanga að kosn­inga­máli. Í mál­efna­á­herslum hans fyrir kosn­ingar sagði að flokk­ur­inn vildi „byggja nýja þjóð­ar­leik­vanga á næsta kjör­tíma­bili í sam­starfi við íþrótta­hreyf­ing­una.“

Þremur dögum fyrir kosn­ing­arnar skrif­uðu þrír for­víg­is­menn flokks­ins: Lilja Alfreðs­dóttir, Willum Þór Þórsson og Ásmundur Einar Daðason grein sem birt­ist á Vísi og bar fyr­ir­sögn­ina „Þjóð­ar­höllin rísi“. Þar sagði meðal ann­ars: „Ef við ætlum áfram að eiga íþrótta­fólk í fremstu röð á heims­vísu verðum við að bæta úr aðstöðu­málum, ann­ars er raun­veru­leg hætta á að við drög­umst aftur úr öðrum þjóðum. Nú er komið að því að bretta upp ermarnar og klára þetta mál sem hefur allt of lengi fengið að mara í hálfu kafi.“

Málið rataði inn í nýjan stjórn­ar­sátt­mála en orða­lagið þar var afar loðið. Þar stóð ein­fald­lega: Unnið verður áfram að upp­bygg­ingu þjóð­ar­hallar inni­í­þrótta og þjóð­ar­leik­vanga.

Þjóðarleikvangur „á þessu kjörtímabili“

Eftir kosn­ing­arnar voru mál­efni þjóð­ar­leik­vanga flutt undir í nýtt mennta- og barna­mála­ráðu­neyti Ásmundar Einars Daða­sonar.

Hann sagði í umræðu­þætt­inum Pall­borð­inu á Vísi þann 9. des­em­ber 2021 að upp­bygg­ing þjóð­ar­leik­vanga, fyrir knatt­spyrnu og inni­í­þróttir, væru eitt af þeim verk­efnum sem væru efst á hans lista á þessu kjör­tíma­bili. „Ég reikna með því að mitt fyrsta mál sem ég fer með inn í rík­is­stjórn varði þetta mál. Fyrsti fund­ur­inn sem ég tók sem ráð­herra var með ÍSÍ og sér­sam­bönd­unum í gær. Það er líka til að und­ir­strika mik­il­vægi þessa mál­efna­flokks."

Þar sagði Ásmundur Einar einnig að dregið gæti til tíð­inda í mál­inu í des­em­ber 2021. „Minn hugur stendur nú til þess að á þessu kjör­tíma­bili geti maður farið á heima­leiki á nýjum þjóð­ar­leik­vang­i.“

Ekkert breyst á 30 árum

Nokkrum vikum áður hafði einn fremsti körfuknatt­leiks­leik­maður Íslands­sög­unnar, Jón Arnór Stef­áns­son, mætt í við­tal við Stöð 2 þar sem hann fór yfir að aðstöðu­leysið sem blasti við börnum og ung­mennum í Laug­ar­dal til inni­í­þrótta. Jón Arnór, sem er íbúi í hverf­inu og á börn sem stunda þar íþróttir, sagði stöð­una þá sömu og hann hefði staðið frammi fyrir 30 árum áður, þegar Jón Arnór var að alast upp í hverf­inu.

Þá leiddi aðstöðu­leysið í Laug­ar­dal til þess að Jón Arnór, og margir aðrir leik­menn sem skip­uðu lyk­il­hlut­verk í gull­ald­ar­liði KR í körfu­bolta fyrr á þess­ari öld, leit­uðu í Vest­ur­bæ­inn til æfinga.

Jón Arnór fylgdi því eftir með grein sem birt­ist á Vísi 1. mars sem bar heitið „Er Degi alveg sama?“. „Enn á ný virð­ist stra­tegían vera sú að þvæla umræðu um þjóð­ar­höll inn í málið og forð­ast þannig að gefa skýr svör.

Jón Arnór Stefánsson í leik með íslenska körfuboltalandsliðinu í Laugardalshöll.
Jón Arnór Stef­áns­son í leik með íslenska körfu­boltalands­lið­inu í Laug­ar­dals­höll.

Mig langar því að spyrja aftur. Stendur til að byggja fjöl­nota íþrótta­hús fyrir íþrótta­fé­lögin í hverf­inu, eða er Degi og félögum alveg sama um íþrótta­iðk­endur hverf­is­fé­laga Laug­ar­dals­ins?“

Dagur gaf loforð

Birting grein­ar­innar var ekki til­viljun. Daginn eftir, 2. mars, hélt Dagur opinn íbúa­fund í Laug­ar­nes­skóla þar sem meðal ann­ars var rætt ítar­lega um aðstöðu­mál íþrótta­fé­lag­anna. Þar sagði Dagur að Reykja­vík­ur­borg hefði tekið frá fjár­muni í upp­bygg­ingu íþrótta­húss og að hún héldi því enn opnu hvort þeim yrði best varið í þjóð­ar­höll eða í sér­stakt íþrótta­hús. Skil­yrðið væri að pen­ing­arnir, um tveir millj­arðar króna, myndu nýt­ast fyrir börn og ung­menni í Laug­ar­dal.

Borg­ar­stjór­inn sagði á fund­inum að því yrði gefin mjög skammur tími að láta á þetta reyna. „Við erum búin að taka frá pen­inga fyrir öðrum hvorum kost­inum. Þannig að það verður að skýr­ast á þessu vori, og ég hef rætt það síð­ast í gær við fleiri en einn ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands, að ríkið ætli sér raun­veru­lega að fara í þetta og setji pen­ing á borðið. Ef að það ger­ist ekki þá förum við í sér­stakt hús fyrir Þrótt og Ármann,“ sagði Dagur á fund­inum.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, á íbúafundi í Laugardal 2. mars síðastliðinn.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, á íbúa­fundi í Laug­ar­dal 2. mars síð­ast­lið­inn.

Hann fékk spurn­ingu úr sal um hversu skammur tími yrði gefin og sagði að slaki yrði gef­inn fram að birt­ingu nýrrar fjár­mála­á­ætl­unar rík­is­stjórn­ar­innar fyrir árin 2023-2028. „Ég segi að ef það verða ekki pen­ingar í þetta þar þá meina þau ekk­ert með þessu. Þannig að fyrir 1. maí þarf þetta að liggja fyrir. Annars legg ég til­lögu fyrir borg­ar­ráð 5. maí.“

Ekkert í nýrri fjármálaáætlun og Dagur stendur við dagsetninguna

Fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar var birt í fyrra­dag. Þar er ekki gert ráð fyrir fjár­munum í upp­bygg­ingu þjóð­ar­leik­vanga út árið 2028. Formenn KSÍ og KKÍ, Vanda Sig­ur­geirs­dóttir og Hannes S. Jónsson, voru sam­mála í sam­tali við Frétta­blaðið að áætl­unin væri ekki með neinum hætti í takti við það sem ráða­menn hefðu sagt. „Þetta er bara eins og að vera sleg­inn niður að fá svona kaldar kveðjur,“ sagði Hannes.

KSÍ hefur átt í óform­legum sam­skiptum við verk­efna­hóp sem þróar hug­mynd­ir um að reisa nýj­an þjóð­ar­leik­vang fyr­ir knatt­spyrnu á fé­lags­svæði Breiða­bliks í Kópa­vogi, og fjár­magna hann með svo­kall­aðri grænni inn­viða­fjár­fest­ingu þar sem fast­eigna­fé­lag kæmi að fjár­mögn­un og rekstri, með aðkomu líf­eyr­is­sjóða.

Í ljósi nýj­ustu tíð­inda um að ekk­ert fjár­magn hafi verið tekið sér­tækt frá í bygg­ingu nýs þjóð­ar­leiksvangs í knatt­spyrnu gæti það sam­tal þró­ast áfram.

Dagur B. Egg­erts­son segir í sam­tali við Kjarnann að ekk­ert hafi breyst að hans hálfu. Allt standi sem sagt var á íbúa­fund­inum og hann mun leita skýr­inga á stöð­unni frá rík­is­stjórn­inni. „Það hefur legið fyrir að ef Þjóð­ar­höll­inn er ekki að fara strax í bygg­ingu þá telji borgin ekki hægt að bíða með úrbætur á aðstöðu í Laug­ar­dalnum. Borgin lagði þá línu að áform um Þjóð­ar­höll þyrftu að vera föst í hendi.“

Að óbreyttu verður því lögð til­laga fyrir borg­ar­ráð Reykja­víkur 5. maí næst­kom­andi, níu dögum fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, um að byggja íþrótta­hús fyrir Þrótt og Ármann á bíla­stæð­inu við Þrótt­ara­heim­ilið í Laug­ar­dal.

Óskilgreint fjárfestingasvigrúm

Ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar sem bera ábyrgð á ann­ars vegar fjár­mála­á­ætlun og hins vegar þjóð­ar­leik­vöngum brugð­ust báðir við í vik­unni. Ásmundur Einar sagði við RÚV að það ætti ekki að lesa of mikið í það að fjár­magn í þjóð­ar­leik­vanga væri ekki á fimm ára áætlun rík­is­sjóð. „Fyrsta mál mitt í rík­is­stjórn var skipun sér­staks stýri­hóps sem hefur verið að halda utan um verk­efnið. Hann er að skila af sér núna svona milli-til­lögu, skulum við segja, öðru hvoru megin við helg­ina og er þar af leið­andi að marka þá verk­efnið áfram.“

Þegar Ásmundur Einar var spurður út í málið í þing­sal í gær sagð­ist hann „reikna með því að öðrum hvorum megin við þessa helgi munum við kynna hvernig við sjáum fyrir okkur skrefin stigin á þessu kjör­tíma­bili hvað það snert­ir. Í fram­hald­inu gæti farið fram áfram­hald­andi sam­tal við borg­ina.“

Bjarni birti stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann kenndi því um að ekki hefði náðst sam­komu­lag milli ríkis og borgar um „fjár­hags­legt fram­lag og aðra þætti“. Það ásamt heims­far­aldri hefði leitt til þess að áætl­anir hefðu raskast. „Varðandi fjár­mála­á­ætlun er því til að svara að það er rangt sem ég les í fjöl­miðlum að ekki sé minnst á þjóð­ar­leik­vanga. Á bls. 330 segir bein­línis að gert sé ráð fyrir að á næstu árum rísi þjóð­ar­leik­vangar og á bls. 90 kemur fram að óráð­stafað fjár­fest­inga­svig­rúm fari vax­andi eftir því sem líður á áætl­un­ar­tíma­bilið. Slíkt svig­rúm getur einmitt nýst til þess að klára fjár­mögnun mann­virkja eins og þjóð­ar­leik­vanga, sem á þessum tíma­punkti liggur reyndar ekki end­an­lega fyrir hvar eiga að rísa og að hvaða marki borgin eða aðrir ætli að taka þátt í að fjár­magna.“

Því er staðan sú að íslenska ríkið hefur til 1. maí að leggja fram fjár­magn­aða til­lögu um upp­bygg­ingu á þjóð­ar­leik­vangi fyrir inni­í­þróttir í Laug­ar­dal. Kostn­aður við nýjan Laug­ar­dals­völl og nýja þjóð­ar­höll er sam­eig­in­lega áætl­aður, sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi gögnum, allt að 23,7 millj­arðar króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið undanfarið ár