„Er ekkert að marka það sem sagt er fyrir utan þennan sal og inni í þessum sal?“

Mennta- og barna­mála­ráð­herra og þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar ræddu nýjan þjóð­ar­leik­vang á þingi í dag – hvort hann væri á dag­skrá eða ekki. Ráð­herr­ann sagði þing­mann­inn spila póli­tískan leik í fyr­ir­spurn sinni.

Ásmundur Einar Daðason og Helga Vala Helgadóttir.
Ásmundur Einar Daðason og Helga Vala Helga­dóttir. Mynd: Samsett mynd/Bára Huld Beck

„Það liggur algjör­lega ljóst fyrir að við ætlum í þessi verk­efni.“ Þetta sagði Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag þegar hann var spurður út í það hvort stjórn­völd hygð­ust taka þátt í að fjár­magna nýjan þjóð­ar­leik­vang á næst­unni.

Helga Vala Helga­dóttir þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar var harð­orð í garð rík­is­stjórn­ar­innar í fyr­ir­spurn sinni. Hún spurði ráð­herr­ann hvort ekk­ert væri að marka yfir­lýs­ingar rík­is­stjórn­ar­innar, hvorki í stjórn­ar­sátt­mála, fyrir kosn­ingar, eftir kosn­ingar eða í við­tölum ráð­herra á síð­ustu mán­uðum. „Er ekk­ert að marka það sem sagt er fyrir utan þennan sal og inni í þessum sal?“ spurði hún meðal ann­ars.

Helga Vala benti á í upp­hafi fyr­ir­spurnar sinnar að fyrsta fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar lægi nú fyrir en í henni er greint frá í hvaða verk­efni rík­is­stjórnin hyggst ráð­ast á kjör­tíma­bil­inu.

„Þar sjá for­stöðu­menn rík­is­stofn­ana líka hvernig landið liggur, enda er það svo að í fjár­lögum er stuðst við þessa fjár­mála­á­ætlun sem sýnir stóru mynd­ina. Það skiptir því máli fyrir allan fyr­ir­sjá­an­leika í rekstri stofn­ana sem reknar eru á opin­beru fjár­magni að fjár­mála­á­ætlun sé í tengslum við raun­veru­legan vilja og áætlun rík­is­stjórnar hverju sinni,“ sagði hún.

[adspot]

Verkefnið ekki á fjármálaáætlun

Helga Vala benti á að Laug­ar­dals­höll væri úr sér gengin og hefði um ára­bil verið á und­an­þágu fyrir keppnir en aðstaðan telst ólög­leg fyrir alþjóð­legar keppnir hvort tveggja í hand­bolta og körfu­bolta.

„Íslensku lands­liðin hafa þannig þurft að leika heima­leiki sína erlendis en líka í snotrum en þó litlum sölum á Ásvöllum og í Smáranum. Laug­ar­dals­völl­ur­inn er einnig á und­an­þágu og stytt­ist í að lands­lið Íslands í fót­bolta þurfi að fara að spila heima­leiki sína erlendis, hvar sem það nú verður. Þrátt fyrir ára­langa umræðu um mik­il­vægi þess að ráð­ist verði í upp­bygg­ingu nýrrar þjóð­ar­hallar og þjóð­ar­leik­vangs, lof­orð í aðdrag­anda kosn­inga, full­yrð­ingar í stjórn­ar­sátt­mála og hvað­eina, eru enn skip­aðir starfs­hópar á starfs­hópa ofan sem eiga að skila nýjum og nýjum skýrslum.“

Sagði hún að ekki ein króna væri sett í þetta verk­efni í fjár­mála­á­ætlun þessa kjör­tíma­bils hjá rík­is­stjórn­inni. „Engir fjár­munir og svo óljóst orða­lag um fjár­fest­ingar til fram­tíðar að það virð­ist morg­un­ljóst að ekk­ert verði af slíkri upp­bygg­ingu.“

Helga Vala spurði því ráð­herr­ann hvort ekk­ert væri að marka yfir­lýs­ingar rík­is­stjórn­ar­innar, hvorki í stjórn­ar­sátt­mála, fyrir kosn­ingar, eftir kosn­ingar eða í við­tölum ráð­herra á síð­ustu mán­uðum. „Er ekk­ert að marka það sem sagt er fyrir utan þennan sal og inni í þessum sal?“ spurði hún.

Þarf að vinna ákveðna grunnvinnu áður

Ásmundur Einar sagði að það væri alger­lega skýrt af hálfu þess­arar rík­is­stjórnar að þau væru að setja það sem lyti að þess­ari þjóð­ar­höll og þjóð­ar­leik­vöngum í for­gang.

„Það liggur hins vegar alveg fyrir – og þarf að vinna ákveðna grunn­vinnu hvað það snertir, það er stýri­hópur starf­andi vegna þess það þarf að fara fram sam­tal við borg­ina og íþrótta­hreyf­ing­una – að það þarf að forma hvar við byrjum, hvað við leggjum áherslu á.“

Hann sagð­ist taka undir áhyggjur Helgu Völu sér­stak­lega gagn­vart inn­an­húss­í­þrótt­unum. Sú vinna væri í fullum gangi.

„Ég reikna með því að öðrum hvorum megin við þessa helgi munum við kynna hvernig við sjáum fyrir okkur skrefin stigin á þessu kjör­tíma­bili hvað það snertir. Í fram­hald­inu gæti farið fram áfram­hald­andi sam­tal við borg­ina, vegna þess að það hefur bara verið sam­tal við borg­ina und­an­farnar vikur, og þá munum við geta áttað okkur á því hvaða fjár­magn nákvæm­lega þarf til hvers og eins þess­ara verk­efna. Þangað til erum við með óráð­stafað fram­kvæmdafé, sem komið hefur fram, bæði í við­tölum við þann sem hér stendur og við hæst­virtan fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem er notað til þeirra verk­efna sem á þarf að halda til að koma þessu sem hrað­ast áfram.“

Vill ekki meina að ríkisstjórnin sé að svíkja þjóðina

Ásmundur Einar sagði að það væri því ekk­ert til í full­yrð­ingum Helgu Völu um að verið væri að svíkja þjóð­ina um þjóð­ar­leik­vanga eða þjóð­ar­hallir og að rík­is­stjórnin ætl­aði sér ekki að standa við það.

„Því hefur verið svarað og alger­lega skýrt að það er ætl­unin. Þegar við sjáum nákvæm­lega hvaða fjár­magn þarf til verks­ins þá er hægt að forma það betur. Þangað til hefur ekki strandað á því á milli mín og fjár­mála­ráð­herra að við höfum getað unnið þau verk sem þarf að vinna í þessu en það tekur tíma, hönnun, skipu­lag, sam­tal og for­gangs­röðun um með hvaða hætti við gerum það. Það eru þau verk­efni sem fram­kvæmd­ar­valdið er með á sinni könnu, það eru þau verk­efni sem ég er með sem ráð­herra og það eru þau verk­efni sem ég ætla að ljúka á þessu kjör­tíma­bili,“ sagði hann í lok fyrra svars síns.

„Hvar ætlið þið að taka peningana?“

Helga Vala kom aftur í pontu og þakk­aði ráð­herra fyrir svarið, að hann ætl­aði að setja upp­bygg­ingu þjóð­ar­leik­vangs og þjóð­ar­hallar í for­gang þrátt fyrir að það væri ekki eina króna í það í fjár­mála­á­ætlun – sem hlyti þó að vera stefnuplagg sem miðað væri við.

Las hún í fram­hald­inu texta upp úr fjár­mála­á­ætlun þar sem segir að þetta svig­rúm yxi smám saman yfir tíma og yrði orðið all­nokkuð undir lok tíma­bils­ins og gæti það ef til vill rúmað ein­hver stærri fjár­fest­ing­ar­verk­efni á síð­ari hluta tíma­bils­ins.

„Í sömu fjár­mála­á­ætlun er verið að tala um að þetta „ef til vill“-fjár­fest­ing­ar­verk­efni sé þjóð­ar­leik­vang­ur­inn, sé þjóðar­í­þrótta­höll, sé lista­há­skóli, sé tækni­skóli. Við fengum skýrslu 2015 um hvað þetta verk­efni kostar í Laug­ar­dalnum, við fengum aðra skýrslu 2018, starfs­hópur skil­aði af sér skýrslu í jan­úar 2019. Hvað þurfum við margar skýrslur, herra for­seti, ef það eru engir pen­ingar sem þið ætlið að setja í verk­efnið? Hvar ætlið þið að taka pen­ing­ana? Ætlið þið að taka pen­ing­ana úr heil­brigð­is­kerf­inu? Ætlið þið að taka pen­ing­ana úr vel­ferð­ar­kerf­inu? Ef þið setjið ekki pen­ing­ana á blaðið, hvernig eigum við þá að trúa því að það sé eitt­hvað að marka þessa fjár­mála­á­ætlun? Í alvöru talað, það er í fjár­mála­á­ætlun þar sem segir hvað þið ætlið að gera, ekki hér með ein­hverjum fag­ur­gala,“ sagði hún.

Málið í pólitískum forgangi

Ráð­herr­ann sagði í fram­hald­inu að það lægi algjör­lega ljóst fyrir að þau þyrftu að átta sig á því hvaða upp­hæðir þyrftu til verks­ins. Helga Vala greip fram í úr þingsalnum og kvart­aði Ásmundur Einar til for­seta. „Það er erfitt að svara þegar þing­mað­ur­inn grípur eilíft fram í í hvert ein­asta sinn sem við eigum orða­stað.“

Hann hélt áfram: „Það liggur algjör­lega ljóst fyrir að við ætlum í þessi verk­efni. Ég verð að segja að mér finnst þetta minna dálítið á umræðu frá síð­asta kjör­tíma­bili þegar verið var að ræða um leng­ingu og hækkun greiðslna í fæð­ing­ar­or­lofi. Í fyrstu fjár­mála­á­ætlun sem lögð var fram lá fyrir að við ætl­uðum okkur að vinna þá vinnu. Það lá fyrir að við vorum að vinna í því. Stjórn­ar­and­staðan, sem er sú sama og nú er, gagn­rýndi það að ekki væri fjár­magn í fjár­mála­á­ætlun, að þetta væru allt saman svik. Hver reynd­ist verða nið­ur­staðan? Fæð­ing­ar­or­lofs­kerfið var tvö­faldað, greiðslur voru hækk­aðar, það var lengt í fæð­ing­ar­or­lofi. Það sama verður upp á ten­ingnum hér.

Við erum að vinna að þessum málum. Þetta er í póli­tískum for­gangi. Þegar það liggur fyrir hvaða fjár­magn þarf til verks­ins verður það eyrna­merkt sér­stak­lega. En fram að því er fram­kvæmdafé óráð­stafað á sam­eig­in­legum lið sem haldið er utan um. Það verður nýtt í það,“ sagði Ásmundur Einar.

„Ég skal gleðja hátt­virtan þing­mann með því að segja að ég held að hún verði fyrir von­brigðum í þessum póli­tíska leik sem hún er í þegar upp verður staðið,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár