Kötturinn Garðar lést af völdum skotsára: „Einhver illa innrættur einstaklingur rústaði lífi hans“

Nýlega greindu Villi­kettir frá því að köttur hefði lát­ist af völdum skotsára sem hann hlaut nálægt Garði á Suð­ur­nesjum. Er það ekki eins­dæmi á því svæði. Formaður Villikatta segir að kettir séu skotnir víða um land. „Ég veit af einum bónda sem skýtur kisur ef þær eru ekki með ól,“ segir hún.

Garðar
Garðar for­maður Villikatta segir það hræði­legt að þurft hafi að aflífa Garðar. „Hann var svo ljúfur.“ Mynd: Villikettir

Fyrir nokkrum dögum greindu Villi­kettir í Reykja­nesbæ frá því að aflífa hefði þurft kött að nafni Garðar vegna þess að ein­hver hafði skotið hann nálægt Garði á Suð­ur­nesjum. Kom fram í færslu sam­tak­anna að þetta væri ekki í fyrsta skiptið sem þau fengju í hend­urnar kött af svip­uðu svæði sem hafði orðið fyrir byssu­kúlu eða höglum. 

Færslan hefst á þeim orðum að það sé „því miður ekki alltaf góður endir á málum“.  

Í júní hafi Villi­kettir fengið ábend­ingu um haltan kött og þegar hann náð­ist um mán­uði síðar hafi hann virst vera snældu­vit­laus, hvæsti bara og urraði. Farið var með hann til dýra­læknis til að skoða fót­inn en ekk­ert kom út úr þeirri heim­sókn. Mánuði síðar fór hann aftur til dýra­læknis, og fór þá að sýna á sér aðra hlið. „Á end­anum brotn­aði þessi skel sem hann var búinn að setja upp og úr henni kom þessi svaka …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Hverskonar fólk gerir svona. Það er fátt sem gerir mig reiðari en dýraníð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár