Rússar sagðir beina skotum að uppreisnarmönnum en ekki Íslamska ríkinu

Rússneski herinn, sem nú hefur stillt sér upp með stjórnarher Sýrlands, undir forystu Bashar al-Assad forseta landsins, hefur haldið áfram loft­árásum á valin skotmörk í landinu í dag, og virðist beina skotum og sprengjum sínum að uppreisnar­hópnum Ahar al-Sham, sem barist hefur við Íslamska ríkið, og stjórnarher Sýrlands. Rússar hófu loft­árásir í gær og er landher í stellingum fyrir frekari aðgerðir.

Þetta kemur fram á vef New York Times, en loftár­árisnar hafa verið þaul­skipulagðar og drónar og gervi­hnettir notaðir til þess að finna skotmörk og framkvæma árásirnar.

Bandarísk stjórn­völd eru sögð uggandi yfir þróun mála í Sýrlandi, enda samþykkja þau ekki samstarf við Assad forseta og hefur Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, gengið svo langt í að kalla hann „illmenni“ sem hiki ekki við að sprengja upp börn og saklausa borgara. Hann geti aldrei verið hluti af pólitískri lausn á stríðinu í Sýrlandi. Undir þetta hafa margir aðrir þjóðar­leiðtogar tekið, þar á meðal Francois Hollande, forseti Frakk­lands, og David Cameron forsætis­ráðherra Bretlands.


Russia is said to carry out airstrikes in Syria for a second day http://t.co/HrH8PLxu5u pic.twitter.com/iR2nikGyXy


— The New York Times (@nytimes) October 1, 2015

Milljónir manna eru nú á flótta frá stríðs­hrjáðum svæðum í Sýrlandi, og er talið að um tíu milljónir manna séu á flótta af um 22 milljóna heildar­íbúafjölda. Um fimm milljónir hafa komist úr fyrir landmæri landsins og leitar stór hluti hópsins til Evrópu.

Rúmlega 250 þúsund manns hafa látið lífið í borgara­styrjöldinni í Sýrlandi frá árinu 2011 og um 800 þúsund slasast, samkvæmt síðustu birtu upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum. Í ljósi viðvarandi stríðs­átaka hækka tölurnar sífellt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár