Fókus, fókus og fókus

TM Software er rótgróið fyrirtæki sem hefur vaxið gríðar­lega hratt á síðustu árum. Vendi­punkturinn í rekstri fyrir­tækisins til góðs var hrun íslenska fjármála­kerfisins, hvorki meira né minna. Þá stóðu starfs­menn frammi fyrir miklum erfið­leikum en ákváðu að treysta á eigið ágæti og fara að þróa og selja eigin hugbúnað. Þetta hefur skilað miklum árangri og er félagið nú í örum vexti á alþjóða­mörkuðum, ekki síst vegna frumkvöðla­starf starfs­manna fyrir­tækisins þegar kemur að þróun nýrra vöru­tegunda.

Ágúst Einarsson, framkvæmda­stjóri TM Software, segir fyrir­tækið hafa lært að „fókus, fókus og aftur fókus“ væri gríðar­lega mikil­vægur þegar kæmi að því að marka sérstöðu og nýta glufur á ógnar­stórum alþjóð­legum markaði. Kjarninn heimsótti höfuð­stöðvar fyrir­tækisins og forvitnaðist um starfsemina.

Kjarninn, Keldan og Arion banki hafa tekið höndum saman um að fjalla um frumkvöðla­starf og nýsköpun af ýmsu tagi í tengslum við Startup Reykjavík viðskipta­hraðalinn sem nú fer fram í þriðja sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár