Áfengisfrumvarpið mikið breytt

Upphaf­lega gerði frum­varpið ráð fyrir að áfengis­sala yrði frjáls og yrði heimil í stór­mörkuðum og öðrum verslunum.

Lagðar eru til mikl­ar breyt­ing­ar á áfeng­is­frum­varp­inu svo­nefndu í drög­um að nefndar­áliti frá alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd Alþing­is. 

Þetta kemur fram á mbl.is.

Málið er nú til um­fjöll­un­ar á fundi nefnd­ar­inn­ar sem fram fer síðar í dag.

Frum­varpið gerði ráð fyrir því í upphafi að sala með áfengi yrði gefin frjáls, og yrði þannig heimiluð í verslunum en ekki aðeins verslunum ÁTVR.

Í frétt mbl.is segir að það sé meðal ann­ars gengið út frá því að áfengi verði ein­ung­is selt í sér­versl­un­um og að rekstri Áfeng­is- og tób­aksversl­un­ar rík­is­ins (ÁTVR) verði haldið áfram. Enn­frem­ur að áfengisaug­lýs­ing­um, þar með talið létt­bjórsaug­lýs­ing­um, verði sett­ar mikl­ar skorður að franskri fyr­ir­mynd og að óheim­ilt verði að selja áfengi und­ir kostnaðar­verði.

Sömu­leiðis er gert ráð fyr­ir því að ald­urs­mörk þeirra sem selji áfengi verði hækkað upp í 20 ár og að af­greiðslu­tími verði stytt­ur frá fyrri frum­varps­drög­um þannig að áfeng­issala verði heim­il á tíma­bil­inu 11-22. Þá er lagt til að lög­in taki gildi 1. júlí á næsta ári, að því er segir í fréttinni.

Til að meta áhrif frum­varps­ins þykir rétt að það viðbót­ar­fé sem renni til lýðheilsu­sjóðs megi nota til rann­sókna á áfeng­isneyslu þjóðar­inn­ar. Sömu­leiðis er lagt til að sér­stök áhersla verði á for­varn­ir og rann­sókn­ir á áfeng­isneyslu á ár­un­um 2018-2022. Þá er lagt til að sá hluti lag­anna sem snýr að hærri fram­lög­um í lýðheilsu­sjóð taki gildi fyrr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár