Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum í dag

Business Insider tekur saman í dag lista yfir mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast.


  1. Tyrkneska lögreglan hefur handtekið á annan tug manna sem eru sagðir meðlimir í hryðjuverka­samtökunum Íslamska ríkið. Mennirnir eru sagðir tengjast sprengju­árásinni í Ankara um helgina, þar sem 95 manns létust.

  2. Fjár­festinga­banki Evrópu mun skoða hvort lán sem Volkswagen hefur fengið í gegnum tíðina hafi verið notuð til þess að þróa hugbúnað sem svindlar á útblásturs­prófum. Ef svo er gæti bankinn krafist endur­greiðslu.

  3. Alexander Lukashenko, sem stundum er kallaður síðasti einræðis­herra Evrópu, sigraði í forseta­kosningum í Hvíta-Rússlandi og hefur sitt fimmta kjör­tímabil.

  4. Volkswagen ætlar að innkalla 1.950 díselbíla í Kína, sem eru búnir búnaði sem svindlar á útblásturs­prófum.

  5. Íran prófaði um helgina nýjar skot­flaugar sem geta hitt skotmörk með mikilli nákvæmni.

  6. Angela Merkel Þýska­lands­kanslari segir að ríkið muni ekki hækka skatta til að standa straum af auknum kostnaði vegna fjölda flótta­manna.

  7. Blaða­maður Washington Post, sem hefur verið í fangelsi í Íran í rúmlega ár sakaður um njósnir, hefur verið dæmdur í fangelsi.

  8. Stærsta brugghús í heimi, Anheuser-Busch InBev, gæti hækkað yfirtöku­tilboð sitt á SABMiller eftir að tilboði um að kaupa á rúma 63 dollara á hlut var hafnað.

  9. El Niño veður­fyrir­brigðið sækir í sig veðrið og vísinda­menn hjá NASA segja að það séu ekki lengur líkur á því að það lognist út af.

  10. Handhafi Nóbels­verð­launanna í hagfræði verður tilkynntur í dag, en enginn einn tilnefndra þykir sigur­stranglegastur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár