Ísland gerist aðili að sameiginlegum viðbragðssveitum Breta

Íslands gekk inn í nýjan varn­ar­mála­vett­vang í vik­unni sem leið og það vakti svo litla athygli að það fór næstum því fram­hjá Samtökum hern­að­ar­and­stæð­inga. Ísland mun lík­lega leggja fram borg­ara­legan sér­fræð­ing í sam­starfið er fram líða stundir.

Bretar leiða Joint Expeditionary Force, en þar erum við nú líka ásamt Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Lettlandi, Litháen, Hollandi, Noregi og Svíþjóð.
Bretar leiða Joint Expeditionary Force, en þar erum við nú líka ásamt Danmörku, Eist­landi, Finn­landi, Lett­landi, Litháen, Hollandi, Noregi og Svíþjóð. Mynd: Af vef stjórnarráðsins

Á þriðju­dag­inn í lið­inni viku birt­ist til­kynn­ing á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins um að Ísland hefði gerst aðili að „sam­starfs­vett­vangi líkt þenkj­andi ríkja í Norður-Evrópu um öryggis- og varn­ar­mál sem Bretar leiða undir merkjum sam­eig­in­legar við­bragðs­sveitar.“

Sturla Sig­ur­jóns­son sendi­herra Íslands í London und­ir­rit­aði sam­komu­lagið fyrir hönd Íslands ásamt Ben Wallace, varn­ar­mála­ráð­herra Breta.

Þar með var Ísland orðið aðili að fyr­ir­bæri sem heitir Joint Expeditionary Force (JEF) – ásamt Bret­landi og átta öðrum ríkjum; Danmörku, Eist­landi, Finn­landi, Lett­landi, Litháen, Hollandi, Noregi og Svíþjóð.

„Það er fagn­að­ar­efni að Ísland taki nú þátt í þessu öryggis- og varn­ar­mála­sam­starfi nokk­urra af okkar helstu vina­ríkjum. Ísland getur lagt sitt af mörkum til sam­starfs­ins en um leið njótum við góðs af auk­inni sam­vinnu við þessi líkt þenkj­andi ríki um örygg­is­mál í víðu sam­hengi,“ var haft eftir Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni, utan­ríkis- og þró­un­ar­sam­vinnu­ráð­herra í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Þar sagði einnig frá því að Ísland myndi ekki bera kostnað af þátt­töku í sam­starf­inu, að öðru leyti en því að fyr­ir­hugað væri að borg­ara­legur sér­fræð­ingur starf­aði á vett­vangi JEF þegar fram liðu stundir. Framlag Íslands yrði á borg­ara­legum for­sendum eins og í öðru fjöl­þjóða­sam­starfi um öryggis- og varn­ar­mál sem Ísland á aðild að.

Fór næstum framhjá hernaðarandstæðingum

Fréttir af aðild Íslands að JEF hafa verið fáar, svo fáar reyndar að þær fóru næstum því fram­hjá Samtökum hern­að­ar­and­stæð­inga, að sögn for­manns sam­tak­anna, Guttorms Þor­steins­sonar. Hann segir Kjarn­anum að sam­tök­unum sýn­ist þetta „óum­deil­an­lega vera hern­að­ar­batt­erí sem eigi að geta tekið þátt í átökum þrátt fyrir alla fyr­ir­vara íslenskra stjórn­valda um að þátt­taka okkar verði á borg­ara­legum grund­velli.“

Í umfjöllun sér­fræð­ings norsku varn­ar­mála­stofn­un­ar­innar í Ósló (IFS) um upp­bygg­ingu og til­gang Joint Expeditionary Forces segir að uppi­staðan í þeim her­afla sem verði til­tækur innan JEF komi frá Bret­landi, eða um 80-90 pró­sent. Talað hefur verið um að á hverjum tíma­punkti eigi að vera hægt að kalla til um það bil tíu þús­und manna her­afla til marg­vís­legra aðgerða hvar sem er í heim­inum.

Hugsunin er sú að sam­starfs­ríkin geti, ef þau vilji leggja Bretum lið í ein­hverjum verk­efnum, komið hratt inn í verk­efnin með sínar við­bragðs­sveitir. JEF geti bæði gripið til aðgerða með eða óháð Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. Dæmi sem stundum er tekið um hvernig JEF gæti starfað er það hvernig ríki á þessum vett­vangi studdu við aðgerðir Breta er ebólu­far­aldur braust út í Vestur-Afríku árið 2014.

Í til­kynn­ingu bresku rík­is­stjórn­ar­innar um aðild Íslands segir að með JEF sé sér­stök áhersla lögð á norð­ur­slóðir, Norður-Atl­ants­haf og Eystra­saltið, þar sem sam­eig­in­legu við­bragðs­sveit­irnar geti stutt við „fæl­ing­ar­stell­ingar“ ein­staka ríkja og Atl­ants­hafs­banda­lags­ins.

Á Guttormi er að merkja að Samtök hern­að­ar­and­stæð­inga séu ekki hrifin af inn­göngu Íslands á þennan vett­vang. „Okkur finnd­ist nær að við efldum sam­vinnu um þau örygg­is­mál sem skipta raun­veru­legu máli eins og lofts­lag­mál og við­brögð við nátt­úru­ham­förum, frekar en að gera það á vett­vangi sem stuðlar að her­væð­ingu norð­ur­slóða og jafn­vel auk­inni spennu á milli Evrópu og Rúss­lands, þvert á hags­muni Íslands.“

Fyrsta ríkið sem bætist í hópinn frá 2017

Kjarninn beindi á mið­viku­dag spurn­ingum til utan­rík­is­is­ráðu­neyt­is­ins um aðild Íslands að JEF, meðal ann­ars um það hvenær póli­tísk ákvörðun um að ganga inn í þennan vett­vang var tekin og hvenær Ísland hefði fengið boð um að ganga inn.

Ísland er fyrsta ríkið sem bæt­ist í hóp­inn frá árinu 2017, er Svíþjóð og Finnland skrif­uðu undir aðild sína að við­bragðs­sveit­unum, sem tóku svo form­lega til starfa árið 2018. Svör hafa ekki borist frá ráðu­neyt­inu.

Norsk stjórn­völd sendu frá sér yfir­lýs­ingu í lið­inni viku þar sem aðild Íslands var sögð gleði­leg. „Stað­setn­ing Íslands er stra­tegískt mik­il­væg og aðild Íslands styrkir enn norður-evr­ópsku sjálfs­vit­und­ina í JEF,“ var haft eftir Frank Bakke-Jensen varn­ar­mála­ráð­herra Noregs í til­kynn­ingu, en Norðmenn hafa verið aðilar að sam­eig­in­legu við­bragðs­sveit­unum allt frá upp­hafi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár