Angry Birds tekst ekki lengur að komast á loft

Finnski leikja­fram­leiðandinn Rovio Entertainment, sem fram­leiðir tölvu­leikinn Angry Birds, á í vandræðum með að þróa leikinn áfram og hefur fyrir­tækinu ekki tekist að halda í við áætlanir um mikinn vöxt. Af þeim sökum verður starfs­mönnum fyrir­tækisins fækkað um 130, en þeir voru allir við störf í Finnlandi.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í bréfi sem forstjóri fyrir­tækisins, Mikael Hed, birti fyrr í dag á vefsíðu fyrir­tækisins. Ekki er langt síðan að Angry Birds leikurinn var fyrir framan nefið milljónum manna um allan heims alla daga, þar sem ungir sem aldnir nutu þess að skjóta reiðu fuglunum á loft við ýmsar krefjandi aðstæður.

Um tíma var App frá Angry Birds það langsamlega vinsælasta í heiminum, bæði fyrir Apple og Android síma. Það er til marks um hversu hratt málin þróast í leikja­heiminum fyrir snjall­síma og spjald­tölvur að nokkuð hratt hefur fjarað undan vinsældum tölvu­leikjanna undir merkjum Angry Birds. Á sama tíma hefur sala á leik­föngum aukist nokkuð.

Hed mun hætta störfum í janúar og nýr forstjóri taka við stjórnar­taumunum, Finninn Pekka Rantala, fyrr­verandi markaðs­stjóri Nokia.

Heildar­tekjur Rovio á árinu 2013 námu 156 milljónum evra, eða sem nemur 23,7 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár