Þolendur kynferðisáreitis á Bessastöðum í leyfi eða hætt

Á Bessa­stöðum búa þrjár fjöl­skyldur; for­seta Íslands og tveggja starfs­manna emb­ætt­is­ins. Und­an­farið ár hefur sam­búðin verið erfið. Annar þess­ara starfs­manna og eig­in­kona hans íhuga að kæra hinn starfs­mann­inn til lög­regl­unnar fyrir kyn­ferð­is­lega áreitni, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Stund­ar­innar.

Heimili
Heimili Bessa­staðir er heim­ili for­seta og tveggja starfs­manna emb­ætt­is­ins. Sambúðin hefur verið styrð síðan einn íbú­inn áreitti nágranna sína í ferð starfs­manna til Parísar.

Tveir starfs­menn for­seta­emb­ætt­is­ins hafa und­an­farna mán­uði verið í veik­inda­leyfi sem þeir rekja til kyn­ferð­is­legrar áreitni af hálfu sam­starfs­manns þeirra. Þriðji ein­stak­lingur, sem er búsettur á Bessa­stöðum, hefur einnig orðið fyrir áreitni af hálfu sama manns. Eini mað­ur­inn sem teng­ist mál­inu og hefur verið að störfum nær óslitið á tíma­bil­inu er ger­and­inn. Sá hefur geng­ist við því að hafa áreitt sam­starfs­menn sína og nágranna en vék aðeins tíma­bundið frá störfum að skipan for­seta Íslands, sem þó hélt því rang­lega fram í yfir­lýs­ingu í októ­ber 2019 að málið hefði verið leyst í sátt við þolendur.

Annar starfs­mann­anna taldi best að hætta hjá emb­ætt­inu og hinn hefur velt því upp við fólk í kringum sig hvort honum muni nokkurn tím­ann verða vært í starfi hjá emb­ætt­inu, á meðan málið er óleyst. Sá býr ásamt fjöl­skyldu sinni á Bessa­stöðum, á móti ger­and­anum, en fjöl­skyldur þeirra eru tvær af þeim þremur sem búsettar eru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár