Þingmenn allra flokka minnast Guðbjarts með hlýju: „Hann var hlýr, réttsýnn, samviskusamur“

Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylk­ing­ar­innar og fyrr­verandi ráðherra, lést í morgun. Þingmenn allra flokka senda aðstand­endum samúðar­kveðjur á Facebook og minnast hans sem vinar og félaga sem hægt var að leita til. „Hann var alltaf boðinn og búinn til að aðstoða.“

Þingmenn úr öllum flokkum hafa birt hjartnæmar samúðar­kveðjur til aðstand­enda Guðbjarts Hannessonar, þingmanns Samfylkingarinnar og fyrr­verandi ráðherra. Hann lést í morgun eftir baráttu við krabba­mein.

Hans er minnst sem vinar og félaga sem sýndi öðrum velvild og hlýju. Þannig segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar að það hafi auðgað sitt líf að verða samferða Guðbjarti í stjórn­málum. „Við minnumst góðs félaga og vinar. Kynnin af Gutta sýndu mér að það var engin tilviljun að hann varð uppalandi og skóla­maður. Hann var félagi af hugsjón og lífs­skoðun – vildi alltaf vinna með fólki og auðga líf samferða­manna. Hann var alltaf tilbúinn að leggja meira á sig en aðra og brást alltaf við hverri hjálparbón. Sannari og traustari félaga hef ég ekki fundið. Hugur okkar er hjá Sigrúnu, Birnu, Hönnu Maríu og fjöl­skyldunni allri,“ skrifar Árni Páll.

 

Katrín Júlíusdóttir, vara­formaður flokksins, segir að hans verði sárt saknað, enda með betri mönnum sem hún hafi kynnst. „Guðbjartur Hannesson félagi minn og vinur er fallinn frá. Sé hann fyrir mér hlæjandi sínum hlýja hlátri enda einstakt ljúfmenni, sanngjarn og skemmtilegur en sótti fast þegar á þurfti að halda. Við erum mörg sem munum sakna hans óskaplega mikið. Einn af þeim bestu sem ég hef kynnst. Samúðar­kveðjur sendum við hans nánustu.“

 

Annar þingmaður Samfylkingarinnar, Helgi Hjörvar, minnist Guðbjarts sem skeleggs baráttu­manns: „Félagi okkar Guðbjartur Hannesson lést í dag langt fyrir aldur fram eftir æðrulausa viðureign við illvígt krabba­mein. Þar fór einstak­lega sanngjarn og skeleggur baráttu­maður fyrir rétt­látara samfélagi og manneskjulegra. Sigrúnu og fjöl­skyldu hans sendi ég mínar dýpstu samúðar­kveðjur.“

 

 

Samúðarkveðjur frá stjórnarþingmönnum 

Þingmenn annarra flokka hafa einnig heiðrað minningu Guðbjarts í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, segir að hann hafi verið réttsýnn og hjarta­hlýr maður. „Góður drengur er það fyrsta sem kemur í hugann þegar ég minnist Guðbjarts Hannessonar. Hann var réttsýnn og hjarta­hlýr og hans verður sárt saknað. Ég vil votta fjöl­skyldu hans samúð mína.“ 

 

Eygló Harðar­dóttir, félags- og húsnæðis­mála­ráðherra, segir mikinn missi af góðum manni. „Ég samhryggist fjöl­skyldu, vinum og samherjum Guðbjarts Hannessonar innilega. Það er mikill missir af þessum góða manni,“ skrifar Eygló.

 

 

Elsa Lára Arnar­dóttir, þingmaður Fram­sóknar, minnist þess hversu reiðu­búinn Guðbjartur var til þess að aðstoða samstarfs­menn sína óháð því í hvaða flokki þeir væru: „Guðbjartur Hannesson, Gutti, hefur kvatt þennan heim alltof snemma. Blessuð sé minning hans. 

Ég og Gutti sátum saman í Allsherjar- og menntamála­nefnd og Velferðar­nefnd þingsins. Hann var alltaf boðinn og búinn til að aðstoða þó við værum ekki alltaf á sömu skoðun og met ég það mikils.

Ég votta fjöl­skyldu hans, vinum og samherjum mínar innilegustu samúðar­kveðjur.“

 

„Hugurinn er hjá fjölskyldunni“

Þá hafa þingmenn úr röðum Pírata, Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar sent aðstand­endum hans samúðar­kveðju. Birgitta Jóns­dóttir, þingmaður Pírata, segir að Guðbjartur hafi verið ákaflega manneskju­legur í öllu samstarfi. „Mikið sem ég mun sakna hans Gutta af þinginu. Hann var hlýr, réttsýnn, samvisku­samur, heil­steyptur og ákaflega manneskju­legur í öllu okkar samstarfi. Blessuð sé minning hans. Ég votta fjöl­skyldu hans og vinum samúð og sendi þeim styrk og birtu,“ skrifar Birgitta.

 

 

Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, segir það forréttindi að hafa fengið tækifæri til að starfa með Guðbjarti: „Góður maður fallinn frá, það voru mikil forréttindi að fá að kynnast og vinna með Gutta. Betri mentor var ekki hægt að fá fyrir mig sem þingmann sem var að stíga sín fyrstu skref á hálu svelli stjórn­málanna. Alltaf boðinn og búinn til að hjálpa og gefa góð ráð. Blessuð sé minning hans.“

 

 

Þá segir Bjarkey Olsen Gunnars­dóttir, þingmaður Vinstri grænna, að Guðbjartur hafi verið yndis­legur maður: „Góður félagi og yndisleg mannvera hann Gutti sem gott var að vinna með. Hugurinn er hjá fjöl­skyldunni sem þarf að kveðja alltof snemma.“

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár