Freyr Eyjólfs: Snautlegt að sjá engan íslenskan ráðherra í göngunni

Það er venju­legur mánudagur í París. Fólk sest niður á kaffihúsi, les morgun­blöðin, spjallar og fer svo í vinnuna. Allt virðist rólegra. Samstöðu­gangan í gær virtist hafa einhverskonar þerapískt gildi fyrir borgarbúa. Skila­boðin í göngunni voru einfald­lega þessi: lífið heldur áfram og virðum grundvallar­gildi þessa samfélags, þau gildi sem hafa bundið saman þetta margleita og fjölskrúðuga samfélag í rúm 200 ár, frelsi, jafnrétti og bræðralag. Dýnamíkin í þessari borg er fjöl­breytnin, hún er litskrúðug og margskonar, hér eru átök og spenna – en einmitt þetta bindur þennan hóp saman. Við getum rifið kjaft, hlegið, gagnrýnt, móðgað hvert annað, trúað á hitt og þetta eða ekki – en berum samt virðingu fyrir réttindum og frelsi hvers og eins.

Fórnaði lífinu fyrir tjáningarfrelsið


Freyr Eyj­ólfs­son.

Freyr Eyjólfsson.
Freyr Eyj­ólfs­son.

Charlie Hebdo gengið var fyrst og fremst skemmtikraftar. Þeir komu fólki til að hlæja og hugsa. Lögreglu­þjónninn og músliminn Ahcmet sem stóð vaktina fyrir utan skrif­stofur þeirra var svo sem enginn aðdáandi verka þeirra, en fórnaði engu að síður lífi sínu til þess að verja tjáninga­frelsi þeirra.

Allt virðist rólegra. Samt er einhver undir­liggjandi spenna. Búið að er aflýsa öllum vettvangs­ferðum og skóla­ferðum grunn­skólabarna í París næstu daga. Um fimmtán þúsund herlögreglu­menn eru á sérstakri vakt á svokölluðum „viðkvæmum svæðum“ víðsvegar um Frakkland. Um 5000 lögreglu­menn gæta sérstak­lega 700 skóla gyðinga í landinu. Það er verið að fara yfir viðbrögð lögreglunnar síðustu viku og hugsanlega leggja drög að því að herða enn eftirlit og öryggis­gæslu. Allt á að gera til þess að reyna hindra frekari hryðju­verk.

Víða var efnt til samstöðu­funda í gær vegna voða­verkanna í París. Hér má sjá þátt­takanda á slíkum fundi í Stokk­hólmi.

Opnara og frjálsara samfélag


Manuel Valls, for­sæt­is­ráð­herra, hélt fund með fjöl­miðlum, til þess að kynna aðgerðir lög­regl­unnar næstu daga. Lög­reglan leitar enn vit­orðs­manna morð­ingj­anna. Það hefur verið stað­fest að ein eig­in­kona þeirra hafi farið til Sýrlands með við­komu í Tyrk­landi. Frakkar og aðrar þjóðir í Evrópu hafa lýst yfir von­brigðum sínum með Tyrki og hvað þeir gera lítið til þess að hindra það að hópar fari frá Evrópu til þess að berj­ast fyrir ISIS í Sýrlandi.

Stockholm rally pays tribute to victims of terror in Paris
Stockholm rally pays tri­bute to victims of ter­ror in Paris

Ýmsir hafa viðrað hugmyndir sínar um að herða enn frekar hryðjuverkalög í Evrópu, fulltrúar Þjóð­fylkingarinnar hafa nefnt hvort ekki sé ráð að draga bara fram fallöxina að nýju. Einhverjir múslimar hafa þurft að þola árásir og svívirðingar síðustu daga. Þetta eru hinar ömurlegu afleiðingar fjöldamorð­anna. Nicolas Sarkozy hefur sagt að nú verði að endur­skoða innflytjenda­lögin.

Öll samstöðu­gangan gekk hins vegar út á það að að bregðast frekar við fjölda­morðunum með opnara og frjálsara samfélagi.

Og það var heldur snautlegt að sjá engan íslenskan ráðherra eða lýðkjörinn fulltrúa Íslands í göngunni. Það hefði verið vel sæmandi til þess að sýna fórnar­lömbunum viðingu og Frökkum samstöðu. En því miður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár