Þrjú ný í stjórn Landsvirkjunar - Jónas Þór áfram formaður

Lands­virkjun greiðir 1,5 milljarða í arð til ríkisins vegna rekstrar á árinu 2017.

Jón Björn Hákonarson, Guðfinna Jóhanna Guðmunds­dóttir og Gunnar Tryggvason koma ný inn í stjórn Lands­virkjunar, en Jónas Þór Guðmundsson, formaður stjórnar, og Álfheiður Inga­dóttir, vara­formaður hennar, sitja áfram í stjórninni.

Úr stjórninni fóru Haraldur Flosi Tryggvason, Kristín Vala Ragnars­dóttir og Ragn­heiður Elín Árna­dóttir en þau hafa setið í stjórn fyrir­tækisins frá árinu 2017.

Forstjóri Lands­virkjunar er sem fyrr, Hörður Arnarson.

Tekin var ákvörðun um að greiða 1,5 milljarða króna til eiganda Lands­virkjunar, ríkisins, vegna rekstrarins á árinu 2017, en staða fyrir­tækisins er sterk um þessar mundir.

Eignir voru í lok árs um 4,5 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur 450 milljörðum íslenskra króna. Vaxta­berandi skuldir námu 2,1 milljarði Bandaríkja­dala, eða um 210 milljörðum króna.

Eigið féð var í lok árs tæplega 2,1 milljarðar Bandaríkja­dala, eða um 210 milljarðar króna. Búast má við því að Lands­virkjun muni greiða ríkinu mun meira í arð á næstu árum, þar sem fyrir­tækið er að greiða niður skuldir og styrkja efnahag sinn ár frá ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár