Íslandsdeildin sat hjá í atkvæðagreiðslu um afglæpavæðingu vændis

Tillaga um afglæpa­væðingu vændis var samþykkt á fundinum í dag. Íslands­deildin reyndi að gera breytingar á tillög­unni, en tókst ekki.

Amnesty International hefur samþykkt að beita sér fyrir afglæpa­væðingu vændis. Tillagan var samþykkt á fundi alþjóða­hreyfingarinnar í Dublin í dag. Þar var samþykkt að fela stjórn samtak­anna að móta stefnu í þessum málum til að styðja við afglæpa­væðingu vændis og tryggja að fólk í kynlífs­iðnaði njóti fullrar og jafnrar verndar gagnvart misnotkun, mansali og ofbeldi.

Í tilkynningu Amnesty International segir að fólk sem starfar við kynlífs­iðnaðinn sé jaðar­hópur sem stendur stöðugt frammi fyrir hættu á mismunun, ofbeldi og misnoktun. Það sé niður­staða tveggja ára rannsóknar­vinnu að þessi leið sé best til þess fallin að tryggja mann­réttindi þessa hóps og draga úr hættunni á ofbeldi og misnotkun sem þeir standa frammi fyrir. 

Íslands­deild Amnesty International tók afstöðu gegn afglæpa­væðingu vændis í breytingar­tillögu sem deildin lagði fram með Svíum. Breytingar­tillagan fékk ekki hljóm­grunn á fundinum. Þegar til atkvæða­greiðslu kom sátu fulltrúar Íslands­deildarinnar hins vegar hjá. 

Hörður Helgason, formaður Íslands­deildar Amnesty International, segir að alþjóða­samtökin hafi farið fram á að trúnaður myndi ríkja um afstöðu deildarinnar þar til tillagan hefði verið afgreidd og niður­staðan kynnt. Starfs­mennirnir gátu því ekki rætt afstöðu deildarinnar opinber­lega á síðustu dögum, þegar mikil umræða hefur verið um málið. „Okkur voru frekar þröngar skorður settar um það hvernig við gátum svarað fjöl­miðlum varðandi okkar afstöðu gagnvart þessari tillögu og þurftum að reiða okkur á óformleg samtöl. Sú ákvörðun var tekin á fundi stjórnarinnar 30. júlí síðastliðinn, þar sem það var einróma samþykkt að það væri ekki hægt að styðja þessa tillögu vegna þess að göngin sem lágu fyrir væru ekki nægilega traust.“

Vont að geta ekki leiðrétt ráðherra

Hörður segir bagalegt hvernig brugðist var við tillög­unni á Íslandi, í ljósi þess að Íslands­deildin hafi ávallt verið andsnúin henni. „Við gátum ekki komið á framfæri leið­réttingum við umræðunni sem spannst í kjölfarið. Sérstak­lega þótti okkur bagalegt að geta ekki leiðrétt utan­ríkis­ráðherra ríkis­stjórnar Íslands sem gagnrýndi okkur sérstak­lega fyrir þessar tillögur um afglæpa­væðingu eða afléttingu refsingu vændis­fólks og vitnaði máli sínu til stuðnings í átakið HeForShe sem UN Women stendur að. Í ljósi þess að samtökin eru ekki einungis hlynnt afléttingu refsinga, eins og Amnesty, heldur ganga lengra og viðurkenna þessa iðju sem atvinnu­grein,“ segir Hörður.

 „Sérstak­lega þótti okkur bagalegt að geta ekki leiðrétt utan­ríkis­ráðherra ríkis­stjórnar Íslands sem gagnrýndi okkur sérstak­lega fyrir þessar tillögur.“

Hann segir að fulltrúar Íslands­deildarinnar hafi fljótlega fundið samherja í öðrum deildum þegar þeir mættu til þingsins og reynt að ná samstöðu um breytingar­tillögu við fyrir­liggjandi tillögu. „Eina deildin sem ég veit um sem ætlar að uppljóstra að hún hafi tekið þátt í því er sænska deildin.

Breytingar­tillagan var tekin fyrir í dag og felld. Niður­staðan var engu að síður sú að uppruna­lega tillagan sem var til afgreiðslu á þinginu var í meðferðum þingsins stórlega breytt. Svo mikið að hún var lögð til hliðar og ný tillaga samin í staðin. Þessi nýja tillaga, þar sem efnislega var komist að sömu niður­stöðu, var samþykkt,“ útskýrir Hörður.

Hann getur ekki tjáð blaða­manni hvernig deildirnar kusu eftir löndum, en segir að mikill meirihluti hafi verið fyrir tillög­unni. Líkt og fyrr segir sat Íslands­deildin hjá þegar atkvæði voru greidd um tillöguna umdeildu, þar sem lagt var til að vændi yrði afglæpa­vætt. „Við sátum hjá við loka­afgreiðslu málsins í samræmi við stjórnar­ályktun þann 30. júlí, þar sem við komumst að þeirri niður­stöðu að það væru ekki fyrir­liggjandi gögn til að styðja þetta en við gætum ekki tekið afstöðu til þess hvað gerðist ef alþjóða­samtökin myndu leggja gögnin fram síðar.“ 

„Við sátum hjá við loka­afgreiðslu málsins í samræmi við stjórnar­ályktun þann 30. júlí.“ 

Vændiskonur mótmæltu tillögunni

Í sameiginlegri yfir­lýsingu sjö kvenna­samtaka á Íslandi var tillagan um afglæpa­væðingu vændis gagnrýnd harðlega. „Ef Amnesty International mælir með að því að vændi verði gefið frjálst, er dólgum og vændis­kaupendum þar með gefin friðhelgi og mann­réttindi kvenna í vændi fótum troðin. Slík stefna myndi skaða þann mikilvæga trúverðug­leika og það traust sem Amnesty nýtur í dag. Það má ekki gerast,“ segir í yfir­lýsingu þeirra.

Sambærilegar yfir­lýsingar bárust frá ýmsum kvenna­hreyfingum erlendis. Auk þess tjáði Gunnar Bragi Sveinsson utan­ríkis­ráðherra sig um málið, sagði vændi ekki vera atvinnu­grein og ekki eiga að fá að þrífast sem slík. „Mér finnst hryggilegt til þess að hugsa að á sama tíma og við hvetjum karla um allan heim til að leggja sitt af mörkum til #heforshe og koma í veg fyrir ofbeldi gegn konum og tryggja kynja­jafnrétti þá skulu ein stærstu og virtustu mann­réttinda­samtök heims leggja þessar tillögur fram,“ skrifaði hann á Facebook.

Þá skrifaði íslensk kona sem hefur verið í vændi bréf til Íslands­deildarinnar sem birt var á Stundinni þar sem hún biðlaði til þeirra að berjast gegn tillög­unni. Í sama streng tóku fyrr­verandi vændis­konur sem útskýra hér af hverju þær lögðust gegn tillög­unni. 

„Getum ekki gefist upp“

„Við getum ekki gefist upp. Það er rignir inn á netið yfir­lýsingum frá samstarfs­konum okkar um allan heim. Amnesty hefur misst trúverðug­leika og traust,“ skrifaði Guðrún Jóns­dóttir, talskona Stígamóta, á Facebook eftir að tillaga Amnesty var samþykkt á alþjóða­þinginu.

Fyrr í dag var hún til viðtals í þætti um vændi á BBC, ríkis­útvarpi Bretlands. Þar vitnaði hún í skýrslu um hvernig sænska módelið hefði gefist í Noregi og sagði þar vændi hafa minnkað um 25 prósent og lögin stuðlað að vitundar­vakningu um vændi. „Auk þess teljum við mikilvægt að bent sé á að þeir sem kaupa vændi geta aldrei vitað hvort konurnar eru þar af fúsum og frjálsum vilja eða hvort þær eru fórnar­lömb mansals. Ef okkur er alvara með barátt­unni gegn mansali þá getum við ekki annað en reynt að draga úr eftir­spurn eftir vændi, því mansal þrífst nær einvörðungu þar sem vændi blómstrar.

Í umræðum um jaðar­settar fátækar konur sagði Guðrún óþolanlegt að slíkar konur stæðu eftir án nokkurra valkosta og yrðu að hafa lifibrauð af því að selja líkama sinn. „Við skilgreinum þetta ekki sem atvinnu­grein og óháð því hvaða lög gilda verður að efla félagsleg aðstoð og tryggja konum útgöngu­leið. Konur þurfa á slíkum kostum að halda til að þær neyðist ekki til að halda áfram í vændis­iðnaðinum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár