Kalla eftir hugmyndum frá almenningi um vannýtt matvæli

Verkefni á vegum sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra óskar eftir hugmyndum frá almenningi og fram­leiðendum um hvernig megi skapa verðmæti úr vannýtum matvælum. Nemendur við Hótel- og matvæla­skólanum munu síðan nýta hugmyndirnar við gerð nýrra rétta.

Matarauður Íslands kallar eftir hugmyndum frá neytendum og framleiðendum, ungum sem öldnum, um hvernig skapa megi verðmæti úr vannýtum matvælum. Þær hugmyndir verða síðan nýttar af Hótel- og matvælaskólanum við gerð nýrra rétta úr vannýttum hráefnum á vorönn 2020.

Þrjár hugmyndir valdar og þróaðar

Matarauður Íslands er verkefni sem heyrir undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og meðal verkefna þess er að draga fram matarmenningu og ýta undir verðmætasköpun í tengslum við matarauð Íslendinga. Leiðarljós verkefnisins er sjálfbær matvælastefna í anda heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem leggja meðal annars áherslu á ábyrga neyslu með minni matarsóun.

Samkvæmt heimasíðu verkefnisins er mikil gróska í nýsköpun á sviði matvæla á Íslandi og á síðustu árum hefur nýtni orðið meira áberandi meðal frumkvöðla. Matvæli, drykkir, fæðubótarefni, snyrtivörur, plástrar og margt fleira eru afrakstur frumkvöðulsstarfs innan matvælageirans.

„Við Íslendingar búum yfir frumkvöðlahjarta sem nýta þarf betur til að skapa verðmæti úr vannýttum matvælum og gjöfulli náttúru. Þannig má sporna gegn matarsóun og ýta undir viðskiptatækifæri sem ratar upp í munn og niður í maga,“ segir í tilkynningunni verkefnisins.

Hægt verður að senda inn hugmyndir um vannýtt matvæli á heimasíðu verkefnisins til 1. janúar næstkomandi.

Kennarar og nemendur við Hótel- og matvælaskólann munu síðan velja þrjár innsendar hugmyndir um vannýtt hráefni og bjóða höfundum þeirra í spjall um mögulegar útfærslur ásamt viðtali við vöruhönnuð.

Rann­saka mat­ar­sóun Íslend­inga

Vest­ræn lönd sóa gíf­­ur­­legu magni mat­væla á hverju ári sem hefðu hugs­an­­lega geta brauð­­fætt millj­­ónir manna. Mat­væla­­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna metur það sem svo að 1,3 milljón tonn af mat­vælum fari í ruslið á hverju ári eða um þriðj­ungur þess matar sem keyptur fer beint í ruslið.

Með því að draga úr mat­ar­sóun má nýta betur auð­lind­ir, spara fé og draga úr los­un gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Á vef­síð­unni mat­ar­só­un.is kemur fram að sam­kvæmt skýrslu Mat­væla– og land­bún­að­ar­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna er áætlað að um 3.300.000 Gg af losun koldí­oxíðí­gilda í heim­inum á ári megi rekja til mat­ar­só­un­ar.

Um þessar mundir stendur Umhverf­is­­stofnun fyrir ítar­­legri rann­­sókn á umfangi mat­­ar­­só­unar á Ísland­i. Þar sem kannað er hversu mik­ill matur fer til spillis á íslenskum heim­ilum og hjá fyr­ir­tækj­um. Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar verða síðan lagðar til grund­vallar vinnu starfs­hóps sem stýrt verður af umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neyt­inu og mun hafa það hlut­verk að koma með frek­ari til­lögur að aðgerðum sem ætlað er að draga úr mat­ar­sóun og þar með úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár