Athuga hvar eftirlitsaðilar gera ónauðsynlegar kröfur til matvæla

Umhverf­is­ráð­herra hefur hrundið af stað aðgerðum til að vinna gegn mat­ar­sóun á Íslandi. Meðal ann­ars verður gerð athugun á því hvar eft­ir­lits­að­ilar gera mögu­lega ónauð­syn­legur kröfur til mat­væla­ör­yggis sem ýtt gætu undir mat­ar­sóun.

Umhverf­is­ráðu­neytið ætlar að ráð­ast í sam­starfs­verk­efni um mat­ar­sóun með Mat­væla­stofnun og heil­brigð­is­eft­ir­litum sveit­ar­fé­laga. Verk­efnið felst í því að gera athugun á því hvar eft­ir­lits­að­ilar gera mögu­lega kröfur sem ekki eru nauð­syn­legar með til­liti til mat­væla­ör­yggis sem gætu ýtt undir mat­ar­sóun. Þetta er hluti af aðgerðum sem umhverfis- og auð­linda­ráð­herra hefur hrundið til að vinna gegn mat­ar­sóun á Íslandi.

Þriðjungur fer beint í ruslið

[links]Vest­ræn lönd sóa gíf­ur­legu magni mat­væla á hverju ári sem hefðu hugs­an­lega geta brauð­fætt millj­ónir manna. Mat­væla­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna metur það sem svo að 1,3 milljón tonn af mat­vælum fari í ruslið á hverju ári eða um þriðj­ungur þess matar sem keyptur fer beint í ruslið.

Með því að draga úr mat­ar­sóun má nýta betur auð­lindir, spara fé og draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Á vef­síð­unni mat­ar­sóun.is kemur fram að sam­kvæmt skýrslu Matvæla– og land­bún­að­ar­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna er áætlað að um 3.300.000 Gg af losun koldí­oxíðí­gilda í heim­inum á ári megi rekja til mat­ar­só­unar.

Þetta mat tekur til los­unar vegna sóunar við frum­fram­leiðslu, við vinnslu og dreif­ingu mat­væla og vegna sóunar hjá neyt­endum. Ef gert er ráð fyrir að losun á hvern íbúa á Íslandi sé sam­bæri­leg með­al­l­osun á hvern íbúa Evrópu þá er losun frá mat­ar­sóun Íslend­inga á ári hverju rúm­lega 200 Gg koldí­oxíðí­gilda. Það gerir um 5 pró­sent af árlegri heild­ar­losun Íslands árið 2013 og rúm 8 pró­sent ef frá er skilin losun frá starf­semi sem fellur undir við­skipta­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins með los­un­ar­heim­ildir.

Því fæst tölu­verður sam­fé­lags­legur, umhverf­is­legur og fjár­hags­legur ávinn­ingur af því að minnka mat­ar­sóun. Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra hefur því ákveðið að hrinda af stað verk­efnum sem ætlað er að vinna gegn mat­ar­sóun á Íslandi. Verk­efnin eru liður í aðgerða­á­ætlun Íslands í lofts­lags­málum og verða í umsjón Umhverf­is­stofn­unar.

Bjóða upp á veitingar úr útlitsgölluðum matvörum

Á meðal verk­efna sem umhverf­is­ráð­herra mun standa fyrir er við­burðar um mat­ar­sóun þar sem verður boðið upp á veit­ingar úr illselj­an­legum „útlits­göll­uðum“ í þeim til­gangi að vekja athygli á hve miklum mat­vælum við sóum árlega. Á vef mat­ar­só­unar segir að um 20 til 40 pró­sent ferskra afurða kom­ast aldrei í versl­anir sökum strangra útlit­skrafna versl­ana. Hvort sem það er vegna vit­lausrar stærðar, litar eða lög­unar. Þetta leiðir til offram­leiðslu bænda til að full­vissa að þeir rækti nægi­legt magn af „fal­legum“ afurðum.

Auk þess mun ráð­herra ráð­ast í sam­starfs­verk­efni um mat­ar­sóun með Mat­væla­stofnun og heil­brigð­is­eft­ir­litum sveit­ar­fé­laga líkt og greint var frá hér fyrir ofan. Gerð verður athugun á því hvar eft­ir­lits­að­ilar gera mögu­lega kröfur sem ekki eru nauð­syn­legar með til­liti til mat­væla­ör­yggis sem gætu ýtt undir mat­ar­sóun. Í fram­hald­inu verður gripið til ráð­staf­ana til að sam­ræma eft­ir­litið í því skyni að tryggja að ein­ungis verði gerðar þær kröfur sem nauð­syn­legar eru vegna mat­væla­ör­yggis.

„Ég er afar ánægður með að vinna við þessi mál sé komin á skrið því mat­ar­sóun er meðal brýn­ustu við­fangs­efna nútím­ans. Mat­væla­fram­leiðsla hefur áhrif á umhverfið, þó í mis­miklum mæli sé – og alltof stór hluti mat­ar­ins fer síðan beint í ruslið. Þegar hann er urð­aður mynd­ast síðan gróð­ur­húsa­loft­teg­undir. Mat­ar­sóun er því stórt lofts­lags­mál sem við ætlum að taka föstum tökum,“ segir Guð­mundur Ingi.

Rannsaka matarsóun Íslendinga

Enn fremur stendur Umhverf­is­stofnun fyrir ítar­legri rann­sókn á umfangi mat­ar­só­unar á Íslandi þar sem kannað er hversu mik­ill matur fer til spillis á íslenskum heim­ilum og hjá fyr­ir­tækjum.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar verða síðan lagðar til grund­vallar vinnu starfs­hóps sem stýrt verður af umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu og mun hafa það hlut­verk að koma með frek­ari til­lögur að aðgerðum sem ætlað er að draga úr mat­ar­sóun og þar með úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda.

Þá ætlar ráð­herra einnig að veita aukið fjár­magn í kynn­ingu og fræðslu um mat­ar­sóun og rekstur vefs­ins matarsoun.is verður tryggður áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár