Tryggir öryggiseftirlitið öryggi?

Allir sem ferðast flugleiðis kannast við öryggis­eftirlitið í flug­stöðvunum. Úr skónum og yfir­höfninni, burt með beltið og armbands­úrið, tölvuna og símann upp úr hand­töskunni. Eigandinn fer svo í gegnum málmleitar­hlið en skórnir (víðast hvar), hand­taskan og allt hitt gegnum sérstakt gegn­umlýsingar­tæki. Sjáist þar eitthvað sem vekur grun­semdir er eigandinn tekinn afsíðis og allur hand­farangur skoðaður. Auk þess eru svo teknar svokallaðar stikk­prufur, þar sem einstaklingarnir eru valdir af handahófi. Allt tekur þetta bjástur sinn tíma enda á mörgum flug­völlum orðið þannig að biðin í öryggis­leitinni tekur drjúgan tíma, jafnvel lengri en við innritunina.

Allt breyttist eftir hryðjuverkin 11. september 2001


Þótt örygg­is­eft­ir­lit hafi vissu­lega verið til staðar fyrir 11. sept­em­ber 2001 varð flestum ljóst að fram að þeim tíma hafði eft­ir­litið verið allt of lítið og til­vilj­ana­kennt. Atburð­irnir í Banda­ríkj­unum þennan örlaga­ríka dag opn­uðu augu heims­ins fyrir þess­ari ógn þar sem eng­inn er óhultur. Og við því þyrfti að bregð­ast til að koma í veg fyrir að slíkt gæti end­ur­tekið sig.

Flug­farþegar urðu strax varir við breytingar. Í nánast öllum flug­stöðvum voru skyndi­lega komnar nýjar reglur, farþegar urðu að fara gegnum svokallaða vopnaleit, allur hand­farangur gegn­umlýstur, hertar reglur um vökva í hand­farangri fylgdu í kjölfarið, tölvur og símar skoðað sérstak­lega og svo framvegis. Eftir að Richard Reid, skósprengju­maðurinn eins og hann var kallaður, reyndi að sprengja farþegavél, sem var á leið frá París til Miami, beindist athygli öryggis­eftirlitsins líka að skótaui farþega. Richard skósprengju­maður var með sprengi­efni í striga­skóm sínum sem honum tókst ekki að kveikja í og aðrir farþegar yfir­buguðu hann og komu þannig í verk fyrir að honum tækist ætlunar­verk sitt.

960 manns í öryggiseftirlitinu á Kastrup


Af öllum flug­völlum á Norð­ur­löndum er umferðin mest um Kastrup við Kaup­manna­höfn og eykst ár frá ári. Í fyrra fóru um völl­inn tutt­ugu og sex og hálf milljón far­þega, hafði þá auk­ist um rúm tíu pró­sent frá árinu áður.

Stærstur hluti þeirra sem um flug­völlinn fara eru milli­landa­farþegar, í fyrra rúmlega tuttugu og tvær milljónir. Á tímabili eftir að reglurnar um öryggis­leitina voru hertar þurftu farþegar stundum að bíða drjúga stund eftir að röðin kæmi að þeim. Svarið við því var að fjölga hinum svokölluðu leitar­hliðum og jafnframt starfs­fólki. Tölurnar tala sínu máli: árið 2002 unnu 360 manns við öryggis­eftirlitið en í dag eru þessir starfs­menn tæplega 1000 og þyrftu helst að vera fleiri segir starfs­fólkið.

Einmanna flug­farþegi á gangi á Kastrup-flugvelli. Mynd: EPA

Einmanna farþegi á gangi á Kastrup-flugvelli. Mynd: EPA
Einmanna far­þegi á gangi á Kastrup-flug­velli. Mynd: EPA

Eftir­litið kostar sitt, á síðasta ári var kostnaðurinn við öryggis­leitina á Kastrup rúmlega hálfur milljarður króna (tæpir tíu milljarðar íslenskir) og eykst stöðugt. Þetta eru miklir peningar og þegar horft er til þess að Kastrup er langt frá því að vera í hópi fjölförnustu flugvalla heims (ekki í hópi 30 stærstu) er ljóst að heildar­kostnaður vegna öryggis­leitar á flug­völlum um víða veröld er gríðar­legur. Þennan kostnað, sem engin leið er að reikna út, bera flug­farþegar.

Hvað með öryggið í röðinni?


Danskir fjöl­miðlar hafa að und­an­förnu fjallað tals­vert um örygg­is­mál á flug­völlum, einkum Kastrup. Ástæðan er sú að 1. apríl var lokað þeim hluta flug­stöðv­ar­innar sem not­aður var fyrir inn­an­lands­flug. Farþegar á leið til Esbjerg fara nú í gegnum sömu örygg­is­leit­ina og þeir sem ætla til Moskvu svo dæmi sé tekið. Flug­vall­ar­yf­ir­völd segja þessa breyt­ingu gerða í hag­ræð­ing­ar­skyni og full­yrða að bið­tím­inn við eft­ir­litið leng­ist ekki en örygg­is­leit­ar­hliðum var jafn­framt fjölgað við þessa breyt­ingu.

Í fyrra lagði örygg­is­leit­ar­fólk á Kastrup hald á rúm­lega 100 tonn af ávaxta­safa, gos­drykkjum, sjampói, fljót­andi sápu og fleiru af svip­uðu tagi.

Ekki eru allir jafn trúaðir á yfir­lýsingar flugvallar­yfir­valdanna og Arne Boelt, borgar­stjóri í Hjørring á Jótlandi, skrifaði Mette Frederiksen dómsmála­ráðherra bréf sem fjöl­miðlar hafa greint frá og vakið hefur athygli. Borgar­stjórinn segir það gott og blessað að fara í gegnum allt þetta öryggis­eftirlit en spyr svo „hvað með röðina áður en komið er að eftirlitinu, þar eru kannski 1500 manns? Enginn veit hvað allt það fólk ber á sér.“ Boelt segist hafa farið að hugsa um þetta þegar hann stóð í hópi 15 annarra danskra borgar-og bæjar­stjóra í röðinni. Hann sagðist líka hafa séð fimm danska þingmenn og einn ráðherra í þessari sömu röð. „Borgar­stjórar, þingmenn og ráðherrar eru ekki merkilegri en annað fólk“ segir borgar­stjórinn í bréfinu en þetta hafi eigi að síður orðið til þess að hann fór að velta öryggis­málunum fyrir sér.

Ber öryggiseftirlitið árangur?


Þessa spurn­ingu lagði eitt dönsku blað­anna fyrir nokkra menn, þar á meðal Hans Jørgen Bonnichsen fyrr­ver­andi yfir­mann dönsku rann­sókn­ar­lög­regl­unnar. Hann svar­aði því til að slíkt hefði í raun aldrei verið metið. „Það er ein­hvern­veg­inn alltaf verið að bregð­ast við því sem hefur gerst,“ sagði Bonnichsen og nefndi bæði 11. sept­em­ber og skó­sprengju­mann­inn í þessu sam­hengi. „Þegar eitt­hvað ger­ist er kraf­ist nýrra og strang­ari reglna, eng­inn vill tala um hvort allt þetta eft­ir­lit skili árangri.“

Vegabréfa­eftirlit á Kastrup. Mynd: EPA

Vegabréfaeftirlit á Kastrup. Mynd: EPA
Vega­bréfa­eft­ir­lit á Kastrup. Mynd: EPA

Í fyrra lagði öryggis­leitarfólk á Kastrup hald á rúmlega 100 tonn af ávaxta­safa, gosdrykkjum, sjampói, fljótandi sápu og fleiru af svipuðu tagi. Tölur um nagla­klippur, lítil skæri og fleira af svipuðu tagi hafa ekki verið gerðar opinberar en nema tugum eða hundruðum kílóa að mati Bonnichsens.

Hans Christian Stigaard sérfræðingur í flug­öryggis­málum og fyrr­verandi yfirmaður á Kastrup tekur í sama streng. Hann segir að stjórn­málamenn vilji sífellt nýjar og strangari reglur, án þess kannski að metið sé hvaða árangri slíkt skili. Dönsk flugmála­yfirvöld séu bundin af reglum Evrópu­sambandsins og geti ekki vikið frá þeim. Magnus Heunicke samgöngu­ráðherra Danmerkur greindi frá því í blaða­viðtali að framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins ynni nú að endur­skoðun öryggis­reglna á flug­völlum, hvenær þeirri endur­skoðun ljúki gat ráðherrann ekki upplýst um.

Hans Jørgen Bonnichsen fyrr­verandi yfirmaður rannsóknar­lögreglunnar og Hans Christian Stigaard sérfræðingur í flug­öryggis­málum voru sammála um nauðsyn öryggis­eftirlits og vopna­leitar en það starf þyrfti að vera markvisst. Stigaard kvaðst þekkja 82 ára gamla konu sem væri með stál í mjaðmarlið. Þessi kona ferðast oft á milli Álaborgar og Kaupmanna­hafnar. Hún er alltaf tekin til nákvæmrar skoðunar (og allt tekið upp úr hand­töskunni) af því að öryggis­hliðið pípir þegar hún gengur í gegn. „Eftirlit af þessu tagi þjónar afar takmörkuðum tilgangi,“ sagði Stigaard.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár