Segir baráttu um umhverfisrask virkjana háða í skotgröfum

Mikilvægt er að verðmeta umhverfis­áhrif fyrir­hugaðra virkjana­framkvæmda svo orku­fyrirtæki greiði meira fyrir þær framkvæmdir sem valda miklu raski, að mati forstöðu­manni Hagfræði­stofnunar Háskóla Íslands.

Urriðafoss í Þjórsá.
Urriða­foss í Þjórsá.

Tjón af umhverfis­raski vegna virkjana­framkvæmda ætti að leiða til útgjalda hjá fjár­festum, sem hægt væri að áætla með hagrænu umhverfis­mati. Þetta skrifar Sigurður Jóhannesson, forstöðu­maður Hagfræði­stofnunar Háskóla Íslands, í nýjasta tölublaði Vísbendingar, sem birtist á föstu­daginn.

Í grein sinni fer Sigurður yfir þær athuga­semdir sem eftirlits­stofnun EFTA hefur gert við tilhögun virkjana á Íslandi til að styðja við samkeppni á orku­markaðnum. Brugðist hefur verið við margar slíkra athugasemda, til dæmis borga orku­fyrirtæki skatta eins og önnur fyrirtæki hérlendis, auk þess sem færri skuldir þeirra eru tryggðar með ríkis­ábyrgð.

Hins vegar hefur ekki verið brugðist við athuga­semdum stofnunarinnar um að færa umhverfis­áhrif virkjana til gjalda hjá orku­fyrirtækjum. Samkvæmt Sigurði er baráttan um umhverfis­áhrifin háð í skot­gröfum hér á landi, þar sem fólk sé annað hvort með virkjunum eða á móti þeim vegna rasksins sem þær valda.

Gallaðar aðferðir í rammaáætlun

Sigurður gagnrýnir þær aðferðir sem hafa verið notaðar til að meta umhverfis­áhrif mögulegra virkjana í ramma­áætlun, en þar ræður sérstök einkunna­gjöf því hvort raskið sé talið nógu lítið til þess að rétt sé að leyfa framkvæmdir. Sem dæmi um galla slíkrar einkunnar­gjafar nefnir hann afdrif Urriða­foss­virkjunar í Þjórsá, en hún var sett í nýtinga­flokk þar sem einkunna­gjöfin í ramma­áætlun benti til þess að virkjunin hefði lítil umhverfis­áhrif.

Hins vegar hafi faghóparnir sem gáfu einkunnina bent á í umsögnun sínum að laxa­stofninn í ánni hefði sérstöðu á heimsvísu sem endur­speglist ekki í heildareinkuninni, þar sem fiskalíf hefur ekki stórt vægi í henni.

Samkvæmt einkunnar­gjöfinni er Urriða­fossvirkjun sú virkjun sem veldur næst­minnstum umhverfis­áhrifum af þeim 26 virkjunar­kostum sem eru skoðaðar. Hins vegar, samkvæmt faghópnum sem gaf þessa einkunn, gefur einkunna­gjöfin „engan veginn rétta mynd af þeim verðmætum sem hér eru í húfi með tilliti til laxa­stofnsins.“ Því hefur virkjunin verið sett í biðflokk, þar sem lítið traust var á einkunnar­gjöfinni.

Hagrænt umhverfismat

Hægt væri að koma í veg fyrir slíkt ósamræmi með svokölluðu hagrænu umhverfis­mati, samkvæmt Sigurði. Í slíku mati séu engin mörk á vægi einstakra þátta, allt fari eftir smekk hvers svaranda.

Hagræna umhverfis­matið er byggt á greiðslu­vilja fólks til að koma í veg fyrir umhverfis­raskið sem virkjuninni fylgir. Hagfræðingarnir Ágúst Arnórsson og Kristín Eiríks­dóttir hjá Hagfræði­stofnun HÍ útbjuggu slíkt mat fyrir Urriða­fossvirkjun með skoðana­könnun fólks sem var á tölvu­póstlista Maskínu, en þar var fólk spurt hversu mikið það væri tilbúið að borga meira fyrir rafmagnið sitt í hverjum mánuði til að greiða fyrir verndar­aðgerðir gegn áhrifum virkjunarinnar.

Út frá svörum frá þessari skoðana­könnun var hægt að meta hversu mikils virði umhverfis­áhrifin af virkjuninni eru í augum hins almenna Íslend­ings, en samkvæmt þeim niður­stöðum væri áhrifin metin á 30 milljarða króna. Ef virkjana­aðilarnir þyrftu að greiða þessa upphæð til að ráðast í virkjunina myndi heildar­kostnaðurinn vegna hennar aukast um 60 prósent.

Sigurður segir það vera eðlilegt að að láta orku­fyrirtækin greiða fyrir umhverfis­áhrif virkjananna sem þau byggja. Gjaldið gæti svo runnið í ríkissjóð, en einnig mætti dreifa því beint til lands­manna. Samkvæmt honum er slík gjaldtaka mikilvæg, þar sem þá sé endanlega tryggt að raskið hafi áhrif á ákvörðun um framkvæmdina, rétt eins og annar kostnaður við hana.

Hægt er að lesa grein Sigurðar í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár