Langflestir Íslendingar vilja að þingmennirnir sex víki

Flestum finnst að Gunnar Bragi Sveins­son þing­maður Mið­flokks­ins eigi að segja af sér en næstum jafn háu hlut­falli finnst að Bergþór Ólason eigi einnig að gera það.

Gunnar Bragi Sveinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Gunnar Bragi Sveins­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Á milli 74 og 91 pró­sent Íslend­inga eru hlynnt afsögn alþing­is­mann­anna sex í kjöl­far umdeildra sam­skipta sem hljóð­rit­aðar voru þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Flestum finnst að Gunnar Bragi Sveins­son þing­maður Mið­flokks­ins eigi að segja af sér en næstum jafn háu hlut­falli finnst að Bergþór Ólason eigi einnig að gera það.

Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu.

Rétt innan við þremur af hverjum fjórum finnst að Anna Kolbrún Árna­dóttir, einnig þing­maður Mið­flokks­ins, eigi að segja af sér þing­mennsku en það er lægsta hlut­fallið. Það er því ljóst að í öllum til­vikum finnst miklum meiri­hluta lands­manna að þing­menn­irnir ættu að hverfa til ann­arra starfa.

Í öllum til­vikum eru konur hlynnt­ari afsögn þing­mann­anna en karlar. Þeir sem eru eldri en 50 ára eru umburð­ar­lynd­ari gagn­vart því að þing­menn­irnir séu áfram á þingi því 8 til 16 pró­sent þeirra eru and­víg því að þeir segi af sér en 2 til 10 pró­sent í öðrum ald­urs­hópum.

Lang­lægst hlut­fall þeirra sem kusu Mið­flokk­inn í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum, þann 28. októ­ber á síð­asta ári, kalla eftir afsögn sex­menn­ing­ana.

Svar­endur voru 1.311 tals­ins og komu úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks dreg­inn með til­viljun úr Þjóðskrá og svarar á net­inu. Svar­endur eru af báðum kynjum, alls stað­arað af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með til­liti til kyns, ald­urs og búsetu. Könnunin fór fram dag­ana 30. nóv­em­ber - 3. des­em­ber 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár