Nýr skammtur af pólitísku valdaplotti á leiðinni, fjórða sería House of Cards 2016

Fram­leiðendur House of Cards-þáttaraðarinnar hafa tilkynnt að gerð verði fjórða sería hennar og að hún verði sýnd snemma á næsta ári, 2016. Ljóst er að fregnirnar munu gleðja þá áskrifendur Netflix, og áhorf­endur allra þeirra sjónvarps­stöðva sem sýna þættina (þar á með RÚV), enda hafa þeir notið feykilegra vinsælda frá því sagan af spennu­þrungnu, lævísu og oft á tíðum siðlausu klifri Underwood-hjónanna upp valda­stiga bandarískra stjórn­mála.

Þriðja serían hefur verið aðgengileg á Netflix frá 27. febrúar síðastliðnum og enn er verið að sýna hana á RÚV, sem hóf sýningar á þeim 2. mars. Líkt og með allt efni sem Netflix fram­leiðir var hægt að horfa á eins marga þætti og viðkomandi vildi strax og búið var að gera þá aðgengi­lega og því margir sem eru löngu búnir að klára seríu þrjú, enda tugþúsundir Íslendinga með aðgang að Netflix. Síðasta fimmtudag tilkynntu fram­leiðendur House of Cards á Twitter að þeir geti hætt að lesa í hvort endir síðustu þáttaraðar sé endalok sögunnar. Fjórða serían verður sýnd á árinu 2016.

 

I will leave a legacy. #Underwood2016 pic.twitter.com/lEC49fd7X1

— House of Cards (@HouseofCards) April 2, 2015

Það er reyndar orðin nokkurs konar hefð hjá fram­leiðendunum að tilkynna um framvindu í fram­leiðslunni á Twitter. Þeir gerðu það líka þegar þeir tilkynntu um þriðju seríuna. Beau Willimon, einn handrits­höfunda þáttanna, tísti í kjölfar yfir­lýsingarinnar að hann og hinir höfundarnir hafi reyndar verið að vinna að fjórðu seríunni mánuðum saman.

Official - S4 of @HouseofCards announced. But the writers & I have been secretly writing for months hehe. @netflix pic.twitter.com/rmra1rWBlj

— Beau Willimon (@BeauWillimon) April 2, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár