Vilja leyfa söfnum að selja úr geymslunum

Dönsku stjórnar­andstöðu­flokkarnir vilja að söfn landsins fái leyfi til að selja muni, til dæmis húsgögn og nytja­hluti sem mörg eintök eru til af, fornmuni sem aldrei eru sýndir í safninu af eða listaverk sem rykfalla í geymslum og aldrei komast í sýninga­salina. Danski menningar­mála­ráðherrann segir að slíkt komi ekki til greina, hugmyndin sé beinlínis fráleit.

Flest eða öll söfn um víða veröld eiga þúsundir muna sem aldrei koma fyrir sjónir almennings en fylla geymslu­pláss safnanna. Söfnin kaupa, eða fá að gjöf fjölda verka eða muna á ári hverju en losa sig aldrei við neitt. Þetta er eins og á heimili þar sem stöðugt er keypt eitthvað nýtt en engu má henda, það gamla fer í geymsluna í kjallaranum og rykfellur þar ár og síð. Þegar svo þarf að finna eitthvað í geymslunni, jóla­skrautið til dæmis, þarf að færa gamla skápinn, kistuna, eða útvarpið hans afa ( nú eða fóta­nuddtækið) og þá er haft á orði að það sé nú aldeilis óþarfi að geyma allt þetta gamla drasl, sem enginn vilji, og best væri að losa sig við þetta dót. Svo gerist ekkert og sagan endurtekur sig ári seinna, þetta þekkja allir.

Vilja að söfnin fái að selja


Eins og mörg söfn um víða ver­öld, kannski flest, vaða dönsk söfn ekki í pen­ingum. Þau hafa á und­an­förnum árum ekki farið var­hluta af krepp­unni og berj­ast í bökkum. Nú hafa dönsku stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir (bláa blokkin svo­nefnda) viðrað þá hug­mynd að söfnum lands­ins verði heim­ilað að selja muni í eigu þeirra, með til­teknum skil­yrðum. Muni, hverju nafni sem þeir nefn­ast, sem ekki telj­ast sér­lega merki­legir, annað hvort vegna þess að margir nákvæm­lega eins eða líkir munir eru í eigu safns­ins. Þetta gæti átt við um hús­gögn og bús­á­höld, hand­verk­s­muni, gamla pen­inga­seðla og mynt svo eitt­hvað sé nefnt. Þetta gæti sömu­leiðis átt við um lista­verk, til dæmis graf­íkverk þar sem safnið á kannski mörg eins verk sama lista­manns. Slík sala gæti skapað söfn­unum tekjur.

Marianne Julved líst vægast sagt ekki vel á fram­komnar hugmyndir um að dönsk söfn fái heimild til að selja safnmuni.

Marianne Julved líst vægast sagt ekki vel á framkomnar hugmyndir um að dönsk söfn fái heimild til að selja safnmuni.
Marianne Julved líst væg­ast sagt ekki vel á fram­komnar hug­myndir um að dönsk söfn fái heim­ild til að selja safn­muni.

 

Ekki ný hugmynd


Þessi hug­mynd er ekki ný af nál­inni. Stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn Venstre (sem ekki er vinstri­flokkur þrátt fyrir nafnið) hefur lengi verið fylgj­andi því að söfnum lands­ins verði heim­ilt að selja úr geymsl­unum, eins og tals­maður flokks­ins orð­aði það í blaða­við­tali. Nú hefur það hins vegar gerst að aðrir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa tekið undir þessa hug­mynd en það hafa þeir ekki áður gert.

Mjög slæm, reyndar fráleit hugmynd segir menningar­mála­ráðherrann Marianne Jelved menningar­mála­ráðherra segist ekki skilja hvernig nokkrum geti dottið annað eins og þetta í hug. Hlutur sem liggur í geymslunni í dag getur allt í einu fengið nýtt hlutverk, það sem ekki þykir svo merkilegt núna getur orðið það á morgun eða eftir tíu ár. Um það getur enginn sagt sagði ráðherann í viðtali við eitt dönsku blaðanna. Marianne Jelved sagði líka að söfnin fengju margar gjafir og það væri hrein móðgun við gefendurna ef viðkomandi hlutur yrði svo seldur. „Söfnin eiga ekki að verða uppboðshús,“ sagði ráðherrann.

Safnafólk tekur hugmyndinni illa


Margt safna­fólk hefur tjáð sig um hug­myndir stjórn­ar­and­stöð­unnar og nær und­an­tekn­inga­laust lýst sig andsnúið þeim. Flestir úr þessum hópi telja hug­mynd­ina um að selja muni til að afla tekna fyrir söfnin mjög slæma og jafn­vel hættu­lega. Einn safn­stjóri sagði að ef þessi sölu­hug­mynd yrði að veru­leika væri stutt í það að fjár­veit­inga­valdið myndi skera niður það fjár­magn sem söfnin fengju og ætl­ast til þess að söfnin myndu afla auk­ins fjár með sölu á safn­munum. „Við getum ekki sam­þykkt slíkt,“ sagði þessi safn­stjóri sem stýrir einu af stærri söfnum lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár