Verður Ólympíueldurinn ljósið við enda ganganna?

Simone Biles veit ekki hvort hún rakar inn gulli á Ólympíu­leikunum 2021 og enginn virðist alveg vita hvað það mun á endanum kosta að fresta Ólympíu­leikum um heilt ár. En jafnt skipu­leggj­endur sem væntanlegir keppendur halda sínu striki.

Simone Biles fangaði hjörtu áhorfenda á Ólympíuleikunum í Ríó 2016. Hún æfir nú fyrir Ólympíuleikana sem vonandi verða haldnir 2021.
Simone Biles fang­aði hjörtu áhorf­enda á Ólymp­íu­leik­unum í Ríó 2016. Hún æfir nú fyrir Ólymp­íu­leik­ana sem von­andi verða haldnir 2021. Mynd: EPA

Eftir að endanleg ákvörðun hafði verið tekin um að fresta Ólympíu­leikunum, viðburði sem aðeins heims­styrjaldir hafa haggað fram til þessa, sagði forseti alþjóða Ólympíu­nefndarinnar að Ólympíu­eldurinn frægi yrði „ljósið við enda ganganna," og vísaði þar væntanlega í heims­faraldur kórónu­veiru sem heims­byggðin fetar sig nú gegnum í sameiningu. Afreks­fólk hefur ár í viðbót til að undirbúa sig og yfirvöld í Japan bæta á sig kostnaði vegna seinkunarinnar. Allir halda þó haus enda mikið í húfi.

Þegar tilkynnt var að Tókýó í Japan yrði vettvangur Ólympíu­leikanna í ár voru fagnaðar­læti japönsku full­trúanna ósvikin. Þeir grétu og hlógu til skiptis, enda hafði Tókýó sótt um að halda leikana 2016 en laut það skiptið í lægra haldið fyrir Ríó í Brasilíu. Í þetta skipti skyldi Tókýóborg og Japan baða sig í athygli heimsins.

Leikarnir áttu að fara fram 24. júlí til 9. ágúst en hefur verið frestað um ár og hefjast þess í stað 23. júlí 2021 og lýkur þann 8. ágúst. Ef ekki tekst að halda leikana þá, ef kórónu­veiran verður enn of mikil ógn, verður hætt við leikana. Enginn vill þó alveg hugsa þá hugsun til enda.

Ólympíu­leikar eru engin venjuleg íþrótta­keppni. Ekkert er til sparað, sýningin á alltaf að vera stórkostleg og leitast í við að toppa síðustu leika. Valið á borg fyrir Ólympíu­leika byggir á mati valnefndar á kynningum borganna. Því stórfenglegri sem kynningin er - því meiri líkur á að hljóta hnossið.

30 milljarðar króna í umsóknir

Tókýó varði 150 milljónum dala í að reyna að fá að halda Ólympíu­leikana 2016 eða sem nemur ríflega 20 milljörðum króna. Í seinna skiptið, þegar sótt var um leikana 2020, voru 75 milljónir dala, um tíu milljarðar króna, settir í kynninguna.

Árið 2013, þegar ákveðið var að Tókýó fengið leikana í ár, höfðu japönsk yfirvöld þannig þegar varið sem nemur 30 milljörðum króna til verk­efnisins.

En sú upphæð er þó bara dropi í hafið miðað við hvað það kostar að byggja Ólympíu­þorp, leikvanga og almennt að styrkja innviði landsins til að ráða við svona mót, undirbúa það og halda sjálfa leikana.

Skipuleggjendur í Japan hafa sagt að Ólympíu­leikarnir í Tókýó, sem hefðu átt að vera í gangi þessa dagana en hefur verið frestað um eitt ár vegna kórónu­veirunnar, myndu hafa kostað 12,6 milljarða dala. Í skýrslu frá ríkis­endur­skoðanda í Japan sem út kom í lok síðasta árs kom þó fram að nær væri að kostnaðurinn væri tvöföld sú tala.

Líklega verður ekki hægt að leggja fyllilega mat á kostnaðinn við að fresta leikunum en áætlað hefur verið að það geti kostað á bilinu tvo til sex milljarða dala til viðbótar við upphaf­legan kostnað.

Heildar­kostnaður fyrir japönsku Ólympíu­nefndina og japanska skatt­greiðendur gæti því hlaupið á bilinu 15 til 30 milljörðum dala. Það eru svo háar tölur að allar skatt­tekjur íslenska ríkisins dygðu aðeins fyrir um tæplega hálfum Ólympíu­leikum, miðað við lægsta mögulega kostnað.

Er eitthvað upp úr þessu að hafa?

Ólympíu­leikar eru viðburður af þeirri stærðar­gráðu að þeir hafa gjarnan orðið umfjöllunar­efni hagfræðinga, sem reyna að rýna í tölur og skoða ávinning og ábata af leikunum.

Í sem stystu máli virðast ansi margir hafa komist að þeirri niður­stöðu að áhrif Ólympíu­leikanna séu síður en svo jákvæð fyrir efnahag þeirra borga sem halda þá. Skammtíma­áhrif eru einhver, til dæmis fjölgar störfum mjög mikið til skamms tíma, en til lengri tíma sitja borgir gjarnan uppi með skulda­hala og ógnarháan rekstrar­kostnað lítið notaðra mann­virkja.

Ríó í Brasilíu situr uppi með verulegar skuldir vegna leikanna 2016 og hefur verið í vandræðum með að kosta viðhald á öllum þeim stóru íþrótta­mannvirkjum sem byggð voru fyrir leikana. Rýnt hefur verið í tölur eftir leikana í London 2012 en þar hefur komið í ljós að aðeins 10 prósent þeirra sem fengu atvinnu tengda Ólympíu­leikunum í borginni voru atvinnu­laus áður. Það þýðir að ekki var um að ræða ný störf nema að litlu leyti.

Almennt hafa borgir ekki komið sérlega vel út úr því fjárhags­lega að halda Ólympíu­leika vegna þess sligandi kostnaðar sem fylgir mann­virkjunum sem byggð eru fyrir leikana. Ávinningur er þó gjarnan talinn felast í aukinni umferð ferða­manna sem vilji heimsækja Ólympíu­borgirnar í kjölfar leikanna, sem þó er mikil óvissa um varðandi leikana 2021. Einnig er óvíst hvort hægt verður að taka við öllum þeim fjölda áhorfenda sem vanalega sækja leikana.

Aðalmálið er þó heiðurinn sem borgunum hlotnast að vera valdar, en hann er erfitt að meta til fjár. Því þrátt fyrir gríðar­legan kostnað þá má líka að segja að gleðin sem leikarnir færa sé ekki þess eðlis að hægt sé að setja á hana verðmiða.

Kasólétt 2020 en í keppnisformi 2021

En þótt sýningin sé gjarnan mikilfengleg og hvergi sé til sparað þá snýst þetta auðvitað ekki bara um peninga. Það eru íþrótta­hetjurnar sem eru í forgrunni. 

Fyrir sumt afreks­fólk er það óvart bara kærkomið að fresta leikunum. Ástralska fimm­þrautar­konan og gull­verðlauna­hafi í sinni grein á síðusu Ólympíu­leikum, Chloe Esposito, er til dæmis kasólétt og hefði verið fjarri góðu gamni í sumar en eygir von um að vera komin í keppnis­form fyrir leikana 2021.

Hún er því meðal þeirra íþrótta­manna sem er bara frekar ánægð með frestunina, af skiljanlegum ástæðum.

Fyrir þá íþrótta­menn sem ætluðu sér að hætta eftir leikana í ár, hefðu þeir verið haldnir á réttum tíma, þýðir frestun leikanna í einhverjum tilvikum að þeir hætta keppni áður en leikarnir eiga sér stað. Treysta líkama sínum einfald­lega ekki til þess að fara í gegnum ár í viðbót af ströngum æfingum.

Biles veit ekki hvort hún verður enn á toppnum 2021

Fáir íþrótta­menn komu sér jafn rækilega fyrir í hjörtum áhorfenda á Ólympíu­leikunum í Ríó 2016 og fimleika­stjarnan Simone Biles. Hún kom heim með fjögur gull um hálsinn og eitt brons. Biles hefur mætt í nokkur viðtöl í heima­landi sínu Banda­ríkjunum undan­farið til að ræða Ólympíu­leikana. Hún ætlar sér á leikana 2021 en hún er þó ekkert endilega viss um að hún nái að vera enn á toppnum á leikunum á næsta ári, enda verður hún þá orðin 24 ára. Þótt það sé almennt ekki talinn hár aldur er það í hærra lagi fyrir fimleika­konu í fremstu röð.

„Þetta er viðkvæmt málefni,” segir Biles en brosir þó út í annað í viðtali sem birt var á Instagram-síðu Ólympíu­nefndarinnar spurð að því hvort hún ætli sér að ná jafnlangt á leikunum 2021 og hún gerði í Ríó 2016.

„Ég hreinlega veit ekki hvort ég verð enn á toppnum eftir heilt ár í viðbót af æfingum,” segir Biles. Hún hefur áður talað um að líkami hennar þoli ekki álagið sem fylgir fimleika­þjálfun mikið lengur. Engu að síður æfir hún af kappi fyrir Ólympíu­leikana 2021.

Biles viðurkennir að það hafi verið óþægileg tilfinning að þurfa að hætta skyndi­lega að æfa þegar heims­faraldurinn stóð sem hæst og fimleika­salnum var lokað. Engar undanþágur voru fyrir Biles frekar en aðra meðan öllum íþrótta­mannvirkjum var lokað í sjö vikur. Öll hennar Ólympíu­gull gátu ekki keypt neinn aðgang umfram hina, hún þurfti að finna ýmsar leiðir til að halda sér í formi líkt og aðrir. Grunn­formið vissulega ögn betra en hjá flestu fólki.

Æfa miðað við að leikarnir verði haldnir

„Við erum með stífa áætlun núna. Það var erfitt að byrja að æfa fyrst aftur eftir að fimleika­salurinn opnaði. Við byrjuðum hægt en erum komin á fullan skrið að nýju og ég mun auka við æfingarnar jafnt og þétt eftir því sem líður á árið. Við vitum auðvitað ekki alveg hvernig þessir leikar verða eða hvort þeir verða haldnir en við æfum samt miðað við að þeir verði, getum ekki annað. Ég er búin að leggja of mikið á mig til að yfirgefa íþróttina núna,” segir Biles.

Með henni líkt og fleirum blundar efi eða kannski frekar meðvitund um að sú staða geti komið upp að leikarnir verði alls ekki haldnir 2021 heldur. Að spá fyrir um það er þó vonlaust. Enginn getur vitað hvernig staðan á heims­faraldri kórónu­veirunnar verður í júlí 2021 og ekkert annað að gera en að undirbúa sig fyrir Ólympíu­leikanna miðað við að þeir verði haldnir að ári. Kannski verður Ólympíu­eldurinn ljósið við enda Covid-ganganna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár