Tíu mikilvægustu hlutirnir í heiminum í dag

Business Insider tekur saman lista yfir mikil­vægustu heims­fréttir dagsins í dag. Eftir­málar jarð­skjálfta, indverskir gangsterar og viðurkenning Rússa.

Meira en 300 manns fórust í snörpum jarðskjálfta í Afganistan og Pakistan.
Meira en 300 manns fór­ust í snörpum jarð­skjálfta í Afganistan og Pakistan. Mynd: EPA

1 300 manns hið minsta fórust í hörðum jarð­skjálfta sem reið yfir norður­héruð Afganistan og Pakistan í gær. Meira en 4.000 híbýli eru ónýt og erfiðlega hefur gengið að senda hjálpar­aðstoð vegna ótryggs ástands á þessu svæði.

2 Unnar kjörvörur á borð við skinku og pylsur geta valdið krabba­meini samkvæmt skýrslu Alþjóða heilbrigðis­stofnunarinnar.

3 Bandarískur tundurspillir silgdi nærri mann­gerðri eyju Kínverja í Suður-Kínahafi. Kínverjar gera tilkall til Spratly-eyja­klasans sem er gríðar­lega umdeildur. Ráðamenn í Kína hafa fordæmt Bandaríkja­stjórn fyrir að ógna fullveldi Kína.

4 Indónesía ætlar að taka þátt í Kyrra­hafs­samstarfinu sem mun verða stærsta fríverslunar­samstarf í heimi ef það verður að veruleika. Áður hafa lönd á borð við Ástralíu, Kanada, Japan, Mexíkó, Víetnam og Banda­ríkin sagst ætla að taka þátt.

5 Rússar viðurkenna að hafa sent hersveitir til Sýrlands síðustu vikur til þess að styðja við bakið á stjórn­völdum í Sýrlandi og forsetanum Bashar al-Assad.

6 Svæði við Persaflóa verða að líkindum of heit fyrir mannfólk árið 2100 vegna hlýnunar loftslags. Þetta eru niður­stöður rann­sóknar á áhrifum loftslags­breytinga sem birtist í tíma­ritinu Nature Climate Change.

7 Barack Obama og þing­flokkur Repúblikana hafa komist að samkomu­lagi um auknar fjár­veitingar til heilbrigðis­trygginga og lífeyris­sjóðsins. Báðar deildir bandaríska þingsins eiga eftir að samþykkja áætlunina.

8 Helsti þrjótur Indlands, kallaður Chhota Rajan, hefur verið handsamaður eftir 20 ára flótta undan lögum og reglu. Rajan er höfuðpaur í risa­stórum indverskum glæpa­samtökum en var í fríi á Bali í gær þegar hann var tekin fastur.

9 Vara­forseti Maldíveyja hefur verið handtekin fyrir að tengsl sín við bana­tilræði við forsetan Abdulla Yameen í síðasta mánuði. Sprengja átti upp bát Yameen á meðan hann var um borð.

10 Bandaríska verslunar­keðjan Walmart hefur óskað eftir leyfi hjá bandarískum stjórn­völdum til að fljúga drónum í vöru­afhendingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár