Lýsa vonbrigðum með að jökulsárnar í Skagafirði séu teknar úr verndarflokki

Samtök ferða­þjón­ust­unnar skora á stjórn­völd að gera ferða­þjón­ust­unni hærra undir höfði við hags­muna­mat þegar ákveðið er hvenær og hvar eigi að virkja.

Flúðasiglingar í jökulsánum í SKagafirði eru undirstaða ferðaþjónustu á svæðinu.
Flúða­sigl­ingar í jök­ulsánum í SKaga­firði eru und­ir­staða ferða­þjón­ustu á svæð­inu.

Samtök ferða­þjón­ust­unnar lýsa von­brigðum með að færa eigi vatna­svæði Hér­aðs­vatna og þar með jök­ulsárnar í Skaga­firði úr vernd­ar­flokki í bið­flokk ramma­á­ætl­unar sam­kvæmt breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis. Til stendur að greiða atkvæði um breyt­ing­ar­til­lög­una, sem og nokkrar breyt­ing­ar­til­lögur minni­hluta nefnd­ar­innar, á morgun.

„Jök­ulsárnar í Skaga­firði eru gríð­ar­lega mik­il­vægar fyrir ferða­þjón­ustu í Skaga­firði og eru flúða­sigl­ingar ein helsta und­ir­staða ferða­þjón­ustu á svæð­inu,“ segir í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna.

Þá lýsa þau einnig yfir miklum von­brigðum með afstöðu meiri­hluta nefnd­ar­innar varð­andi áhrif vind­orku­kosts­ins Búr­fellslundar. „Meiri­hlut­inn virð­ist ekki byggja afstöðu sína um lítil áhrif á ferða­þjón­ustu á neinu sér­stöku nema til­finn­ingu. Samtökin telja var­huga­vert að setja Búr­fellslund í nýt­ing­ar­flokk.“ Verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar rað­aði honum í bið­flokk því hún taldi frek­ari gögn vanta til að taka afstöðu til þess hvort hann ætti heima í verndar- eða orku­nýt­ing­ar­flokki.

Samtök ferða­þjón­ust­unnar skora á stjórn­völd að gera ferða­þjón­ust­unni hærra undir höfði við hags­muna­mat þegar ákveðið er hvenær og hvar eigi að virkja. Einnig vilja sam­tökin minna á að ferli áætl­unar um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða sé virkt og að sátt ríki um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag orku­vinnslu hér á landi.b

Því er hins vegar fagnað að meiri­hluti umhverfis- og sam­göngu­nefndar hafi lagt til að Skrokköldu­virkjun verði tekin úr nýt­ing­ar­flokki og sett í bið. „Það hefði þó verið betra ef þessi virkj­un­ar­kostur hefði verið settur í vernd­ar­flokk enda við jaðar stærsta þjóð­garðs Evrópu. Einnig fagna sam­tökin þeirri breyt­ingu að draga virkj­un­ar­kosti úr bið­flokki og fella þá úr áætl­un­inni.“

Samtökin hvetja jafn­framt umhverf­is­ráð­herra til að frið­lýsa Torfa­jök­uls­svæðið, Grashaga og Sandfell enda liggi svæðin í nágrenni við vin­sæl­ustu og mest sóttu göngu­leið lands­ins, Lauga­veg­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár