Pálmi tekur 290 milljóna arð til aflandsfélags í Lúxemborg

Ferða­skrifstofa Pálma Haralds­sonar hefur hagnast um vel á annað hundrað milljónir króna tvö ár í ár. Eina fyrir­tækið sem Pálmi heldur eftir á Íslandi. Tekjur nema nærri 3 milljörðum króna.

Arður ár eftir ár
Arður ár eftir ár Pálmi Har­alds­son tekur nú arð út úr ferða­skrif­stofu sinni ár eftir ár en hann missti flest fyr­ir­tækja sinna eftir hrunið 2008.

Pálmi Haraldsson, fjár­festir og fyrr­verandi eigandi Fons, greiddi 120 milljóna króna arð út úr fyrirtæki sínu Ferða­skrifstofu Íslands í fyrra og ætlar að bæta við 170 milljónum króna á þessu ári. Arðurinn rennur til móður­félags Ferða­skrifstofu Íslands í Lúxemborg sem heitir Academy S.A.R.L. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Ferða­skrifstofu Íslands. Það fyrirtæki rekur ferða­skrif­stofurnar Sumar­ferðir, Úrval Útsýn og Plús­ferðir, Hekla Travel A/S í Danmörku, Hekla Travel AB og Hekla Resor AB í Svíþjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár