Folgers er vinsælasta kaffið - Starbucks í fjórða sæti

Það er hörð barátta á bandarískum kaffi­markaði, en það vörumerki sem sótt hefur hraðast á, og komið sér í sterka stöðu þegar kemur að sölu í verslunum, er Folgers. Heildar­sölutekjur kaffi­risans, miðað við síðustu saman­teknu heildar­tölur, sem miðast við lok árs 2012, nema 1,4 milljarði Bandaríkja­dala, eða um 200 milljörðum króna. Í öðru sæti þar á eftir, með tæplega helmingi lægri tekjur, er Maxwell House með 708 milljónir dala, eða sem nemur 92 milljörðum króna. Folgers hefur tekist að auka sölu­tekjur sínar mikið að undan­förnu, og jókst salan meðal annars um 31,6 prósent á milli ára.

Sala á kaffi í búðum í Banda­ríkjunum hefur vaxið mikið á síðustu árum, og samhliða hefur kaffi­húsum fjölgað mikið, einkum í stærstu borgum Banda­ríkjanna.

Lista yfir stærstu kaffi­fram­leiðendur Banda­ríkjanna, þegar kemur að kaffisölu í búðum, má finna í skýrslu IRi.

Sala á kaffi í Banda­ríkj­unum í búðum Tegund Sölu­tekjur Hlut­falls­leg breyt­ing
(frá 2012)
1 Folgers 1, 4 ma. dala. 31.6% - 1.3%
2 Maxwell House 708.5 m. dala. 16.0% -0.9%
3 Private Label 478.3 m. dala. 10.8% + 0.3%
4 Starbucks 342.2 m. dala. 7.7% + 0.7%
5 Dunkin' Donuts 301.1 m. dala. 6.8% + 0.3%

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár