Svona spornar þú við sóun í sumarfríinu

Það vill enginn koma heim í ýldulykt eftir gott frí. Þá vilja eflaust flestir ekki umturnast í umhverfis­sóða á ferða­laginu. Hér eru nokkur ráð til njóta sumar­leyfisins langþráða án þess að koma heim í fýlu.

Heimili eru talin ábyrg fyrir tonnum á tonn ofan af matvælum sem fara í ruslið.
Heimili eru talin ábyrg fyrir tonnum á tonn ofan af mat­vælum sem fara í ruslið.

Ef þú ert að fara í ferðalag og ísskápurinn þinn er fullur af alls konar mat sem þú hefur bæði eytt tíma, peningum og óhjá­kvæmilega oft nátt­úrunnar gæðum í að koma þangað, skaltu opna hann núna og gera vöru­talningu. Leynist ekki þarna eitthvað sem mætti taka með í nesti – eða best er að setja í frysti áður en lagt er í‘ann á vit ævintýr­anna?

Matarsóun er gríðar­stórt vandamál víðast hvar í heiminum og við Íslendingar eigum okkar sök í því. Samkvæmt rann­sóknum sem gerðar hafa verið á umfangi matar­sóunar er hún svipuð hér og í öðrum löndum Evrópu. Og því ber ekki að fagna.

Í skýrslu Umhverfis­stofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir árið 2021 segir að um 8-19 prósent af allri losun gróðurhúsa­lofttegunda á jörðinni af manna­völdum megi rekja til matar sem aldrei er neytt. Rann­sóknir stofnunarinnar benda til að um 17 prósent allra matvæla sem eru framleidd fari til spillis. Það gerir um 120 kíló af matvælum á hvert mannsbarn á ári. Það er því til mikils að vinna, bæði fyrir umhverfið og budduna að draga úr matarsóun.

Umhverfis­stofnun Íslands hefur nú gefið út nokkur góð ráð til að undirbúa brott­förina og sporna gegn matarsóun:

  • Vöndum innkaup síðustu dagana. Fyllum ekki ísskápinn af ferskvöru rétt áður en lagt er af stað í frí. Reynum að saxa á það sem til er og höldum innkaupum í lágmarki
  • Gefum ferskvöru. Ef mikið er til af ferskvöru er um að gera að koma henni á góðan stað; til ættingja, vina eða nágranna sem munu geta nýtt sér matinn áður en hann skemmist
  • Frystum. Kannski er eitthvað í eldhúsinu sem mun nýtast þegar heim er komið ef við frystum matinn? Niður­skornir ávextir geta til dæmis nýst í drykki úr bland­aranum eða í spennandi sultur. Munum líka að mjólkur­vörur frystast vel; mjólk, smjör, rjómi og ostur sem dæmi. Og auðvitað brauðið!
  • Nýtum í nesti. Tökum með okkur mat úr ísskápnum í ferða­lagið, hvort sem það er í nestis­töskuna til neyslu samdægurs eða til lengri tíma í kæliboxið

Á pökkunarlistann

Ýmsar góðar venjur úr hversdags­lífinu riðlast gjarnan þegar farið er í frí. Hér eru nokkrir hlutir sem gott er að pakka niður í töskuna áður en lagt er í hann:

  • Fjölnota vatns­brúsi
  • Fjölnota kaffimál
  • Fjölnota borð­búnaður
  • Fjölnota poki fyrir búða­ferðir

Um sextíu prósent allrar matar­sóunar á sér stað inni á heimilunum. Fjörtíu prósent matarins fara til spillis á veitinga­stöðum, í verslunum, á mörkuðum og á framleiðslu­stað, s.s. bónda­býlum.

Þessi mikla sóun hefur ekki aðeins þau áhrif að flóð einnota umbúða eykst heldur setur sitt spor á allt lífríkið. Óræktað land með sínum einstöku vist­kerfum eru brotið undir landbúnað fyrir mat sem enginn borðar.

„Ef við ætlum raun­verulega að taka á loftslags­breytingum, hnignun nátt­úrunnar og vistkerfa, mengun og sóun, verða fyrirtæki, stjórn­völd og borgarar þessa heims að gera sitt til að draga úr matarsóun,“ segir Inger Andersen, forstjóri Umhverfis­stofnunar Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár