Búið að finna skrokk Air Asia flugvélarinnar sem fórst

Búið er að finna skrokk Air Asia flug­vélarinnar sem fórst í Javahafi 28. desember síðastliðinn. Varnarmála­ráðherra Singapúr, Ng Eng Hen, setti inn myndir af skrokknum á Facebook-síðu sína. Myndirnar voru teknar úr ómönnuðu könnunar­fari sjóhersins í Singapúr.

Yfir­völdum í Indónesíu var greint frá þessu svo hægt væri að grípa til aðgerða og koma vélinni af hafsbotni.

Flugvélin hvarf af ratsjám 28. desember þegar hún var innan við hálfnuð á tveggja klukku­stunda flugi frá Surabaya í Indónesíu til Singapúr. Flug­maðurinn hafði óskað eftir breytingu á flug­leiðinni vegna óveðurs, en enn er ekki vitað nákvæmlega hvað varð til þess að vélin fórst. 162 voru um borð en hingað til hafa 48 lík fundist. Yfirmaður leitarinnar, Bambang Soelistyo, segir við BBC að ekki sé ljóst hvort lík hinna eru í skrokknum, en vonir standa til þess.

Stél vélarinnar fannst um helgina og svörtu kassarnir tveir fundust á mánudag og þriðjudag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár