Hóta að loka kísilveri United Silicon

Umhverfis­stofnun krefst tafar­lausra aðgerða til að draga úr mengun. Íbúar í nágrenni kvarta undan menguninni.

Umhverfis­stofnun ætlar að stöðva rekstur United Silicon, verði ekki ráðist í tafar­lausar úrbætur í mengunar­málum. Frá þessu var grein í fréttum RÚV í kvöld en 14 daga frestur hefur verið gefinn til viðbragða.

Íbúar á Reykjanesi í nágrenni starfseminnar hafa kvartað undan líkamlegum einkennum vegna mengunar frá verksmiðjunni og kom fram í umfjöllun RÚV að ábendingum hafi „rignt“ yfir Umhverfis­stofnun frá íbúum á Reykjanesi þar sem kvartað er undan lyktar- og reyk­mengun frá kísilveri United Silicon í Helguvík. Verksmiðjan var gangsett í nóvember og hefur Umhverfis­stofnun fylgst grannt með starfsemi hennar síðan þá. Í gær sendi stofnunin fyrir­tækinu svo harðort bréf.

„Það er vegna þess að vandamál varðandi lykt og sýnilegan reyk frá verksmiðjunni eru orðin viðvarandi að okkar mati,“ sagði Sigrún Ágústs­dóttir, sviðs­stjóri hjá Umhverfis­stofnun, í viðtal við RÚV. „Við höfum ekki séð að það hafi verið gerðar umtals­verðar umbætur. Við höfum á undan­förnum dögum verið að fá til okkar á sjötta tug kvartana frá íbúum í Reykja­nesbæ sem sumir hverjir kvarta yfir líkamlegum einkennum, sviða í hálsi og öðru slíku. Og við teljum bara tímabært að það verði gerðar þarna úrbætur sem um munar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár