Ekkert líf í þrjá mánuði

Árni Þór Árnason, kynninga­stjóri Forlagins, á sér ekkert líf á meðan jóla­bókaflóðið stendur yfir.

Jóla­bókaflóðið er rétt handan við hornið og í því mæðir mikið á kynningar­stjórum forlag­anna, sem sjá um skipulagningu á öllu sem viðkemur því að koma bókunum á framfæri. Árni Þór Árnason, kynningar­stjóri Forlagsins, viðurkennir að þá þrjá mánuði sem flóðið stendur yfir eigi hann sér ekkert líf, sem væri glatað ef starfið væri ekki svona skemmtilegt, en þá fái hann útrás í að spila pönk sem hann fullyrðir að sé hreins­andi.

Fyrsta spurningin sem ég spyr Árna Þór er einfald­lega: Hvað gerir kynningar­stjóri bóka­forlags eiginlega?

„Í raun er þetta mjög einfalt: Ég reyni eftir besta megni að kynna bækurnar sem við gefum út fyrir almenningi og þar með vekja áhuga fólks á nýjum bókmenntum – og bókmenntum yfir höfuð ef við förum í stóru myndina. Aðferðirnar við að ná til fólks eru þó afar mismun­andi, allt frá því að skipuleggja viðtöl í fjöl­miðlum yfir í að framkvæma gjörninga úti á götu. Þetta er sem sagt mjög skapandi starf, mikil hugmynda­vinna og oftar en ekki mikill hasar. Skemmtilegast er ef til vill að fá að vinna svona mikið með höfundunum sjálfum. Fyrir jólin þarf í miðri geðveikinni að halda þétt utan um kynningar­starfsemina og skipulagið og veita pepp og knús eftir því sem við á. Auk þess sé ég um flesta viðburði sem Forlagið heldur, heima­síðuna og samfélags­miðlana.“

Er þetta ekki stress­andi starf; dílandi við úttaugaða rithöfunda og geðstirða fjölmiðla­menn daginn út og inn?

„Tjahh. Oftar en ekki er það líka hlutverk manns að halda kúlinu og leysa málin. Man eftir sérstak­lega zen momenti þegar höfundur hringdi í mig úr útvarps­þætti og ætlaði að hrekkja mig með að segja mér að hræðilegri sögu af honum sjálfum hefði verið lekið og hún væri á leið í fjölmiðla og spurði hvað hann ætti til bragðs að taka. Hrekkurinn var ónothæfur því ég brjálaðist ekki heldur leysti málið. Viðurkenni þó að þrjá mánuði á ári á ég mér ekki líf. Sem væri glatað ef þetta væri ekki svona ógeðslega gaman!“

En hvernig lentirðu í þessu starfi? Varla hefur það verið æsku­draumurinn að verða kynningar­stjóri bóka­forlags þegar þú yrðir stór?

„Ég var heppinn. Hafði örugglega eitthvað til brunns að bera en var líka bara heppinn. Ég er útskrifaður úr bókmennta­fræði og langaði, eins og örugglega flesta bókmennta­fræðinga, að komast í starf hjá útgáfu. Vandinn er bara að það eru svo fáar stöður í boði og starfs­aldurinn í þessum bransa alveg fáránlega hár. Þegar ég tók mastergráðu í ritstjórn og útgáfu var hluti af náminu starfsnám. Ég komst inn hjá Forlaginu og var ráðinn beint úr nema­stöðunni. Hef talið mig heppinn að hafa komist inn í þennan geira síðan. Annars var æsku­draumurinn að vera rokkstjarna en þann draum er ég enn að elta svona on the side.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár