Samhæfingarmiðstöðin virkjuð vegna leitar að flugvél

Búið er að virkja samhæfingar­miðstöðina í Skógar­hlíð vegna leitar að lítilli flugvél sem ekkert hefur spurst til síðan skömmu fyrir hádegi. Fjórir eru um borð í vélinni.

Landhelgis­gæslan leitar nú flugvélar sem fór frá Reykja­víkur­flugvelli í morgun. Fjórir eru um borð í vélinni en ekkert hefur spurst til hennar síðan skömmu fyrir hádegi. Búið er að virkja samhæfingar­miðstöðina í Skógar­hlíð. 

Flugvélin fór frá Reykja­víkur­flugvelli um klukkan 10.30 í morgun og um klukku­stund síðar náðist mynd af vélinni en óvíst hvar hún var þá, segir Ásgeirs Erlendsson, upplýsinga­fulltrúa Gæslunnar, og bætir við að ekki hafi náðst samband við vélina síðan um klukkan 11.30. 

Ásgeir segir að leitar­svæðið sé enn mjög stórt og að unnið sé með allar vísbendingar sem hafi borist, meðal annars gögn úr símum þeirra sem eru um borð í vélinni. Þetta er gert til að reyna að þrengja leitar­svæðið segir Ásgeir í samtali við Stundina. 

Auk þyrlu­sveitar Landhelgis­gæslunnar leita nú björgunar­sveitir frá Höfuð­borgar­svæðinu, af Suðurnesjum og Suður­landi að flug­vélinni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár