Óttarr Proppé: „Við höfum staðið fast á prinsipum“

Óttarr Proppé útskýrir viðræðu­slit við Sjálfstæðis­flokkinn.

Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, útskýrir hvers vegna viðræður um myndun hægri stjórnar með Sjálfstæðis­flokki og Viðreisn gengu ekki eftir. 

Óttarr, sem hefur verið harðlega gagn­rýndur fyrir að stefna á hægri stjórn, segir Bjarta framtíð hafa staðið fast á prinsippum. Stjórnar­maður í Bjartri framtíð sagði meðal annars að Óttarri hefði verið „úthúðað“ fyrir viðræðurnar.

„Það hefur verið vel þess virði að taka þátt í stjórnar­myndunar­viðræðum til þess að reyna að ná saman um frjáls­lyndar áherslur og umbætur í íslensku samfélagi. Á endanum reyndist hugmyndin um að þjóðin fengi að greiða atkvæði um áframhald viðræðna við ESB annars vegar, og umbætur í kvóta­kerfinu hins vegar, of stór biti fyrir menn að kyngja. Björt framtíð hefur frá upphafi verið skýr um það að við erum tilbúin að axla ábyrgð til góðra verka en ekki lélegra. Við höfum staðið fast á þeim prinsipum og munu gera það áfram. Á endanum er það almanna­hagur sem skiptir máli. Ekkert annað. Ást og friður,“ skrifar Óttarr á Facebook.

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, hefur greint frá því að sjávar­útvegs­málin hafi staðið helst í vegi fyrir myndun ríkis­stjórnar með Sjálfstæðis­flokki.

Sjálfstæðis­flokkurinn neitar að fara markaðs­leið í sjávar­útvegi og bjóða upp afla­heimildir. 

Sjá færsl­una á Facebook

 

Sjá færsl­una á Facebook

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár